fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fréttir

Sagður hafa fengið um 300 þúsund krónur frá undirheimunum

Jens Gunnarsson lögreglumaður sat í gæsluvarðhaldi

Auður Ösp
Föstudaginn 8. janúar 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jens Gunnarsson lögreglumaður, sem sat í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni og í einangrun, er grunaður um óeðlileg tengsl við brotamenn. Samkvæmt heimildum dv.is er Jens grunaður um að hafa tekið við greiðslum í skiptum fyrir upplýsingar úr fíkniefnadeild lögreglunnar. Öruggar heimildir DV herma að lögreglan hafi grun um að um fastar mánaðarlegar greiðslur sé að ræða sem nema um mánaðar grunnlaunum almenns lögreglumanns, eða í kringum 300 þúsund. Ekki er vitað hversu lengi þessar meintu greiðslur hafa staðið yfir.

Það vakti mikla athygli þegar greint var frá því að lögreglumaður sæti í einangrun á Litla-Hrauni. Jens var látinn laus á fimmtudag. Hann neitar sök. Þá hefur annar maður verið handtekinn í tengslum við málið.

Dv.is hefur rætt við tvo fyrrverandi fíkniefnasölumenn sem greina frá því að ekki sé nýtt af nálinni að lögreglumenn taki við greiðslum gegn upplýsingum, þá til dæmis til að vara við að leita eigi á heimili viðkomandi.

Samstarfsfólk Jens er í áfalli og hefur þegið áfallahjálp eftir að málið kom upp. Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri segir að málið hafi komið samstarfsmönnum í opna skjöldu og er Jens lýst sem yfirveguðum og faglegum og hingað til talinn stálheiðarlegur í öllu sínu starfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Borgarstjóri segir hjólabrettafólkið ekki eitt um að koma af fjöllum – „Án samráðs eða auglýsingar“ 

Borgarstjóri segir hjólabrettafólkið ekki eitt um að koma af fjöllum – „Án samráðs eða auglýsingar“ 
Fréttir
Í gær

Beta gefst upp á að innheimta tjón á íbúð sem skemmdist í útleigu borgarinnar – „Ég er ekki að sakast við fólkið“

Beta gefst upp á að innheimta tjón á íbúð sem skemmdist í útleigu borgarinnar – „Ég er ekki að sakast við fólkið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“