

Foreldrar nokkurra drengja í öðrum flokki karla í knattspyrnu hjá Haukum í Hafnarfirði eru ósáttir við það sem þeir segja vera kosningaáróður Sjálfstæðisflokksins innan félagsins. Að sögn þeirra var æfing hjá drengjunum, sem eru 17 til 19 ára gamlir, stytt fimmtudaginn 8. mars til að þeir gætu farið í Valhöll og skráð sig í flokkinn og drengjunum sagt að hann væri sá eini sem myndi standa við að reisa knattspyrnuhöll á Haukasvæðinu.
Þá setti Rúnar Guðlaugsson aðstoðarþjálfari færslu inn á lokaða síðu annars flokks með hlekk á síðu Sjálfstæðisflokksins þar sem hægt var að skrá sig. Við hana stóð „ATH Bara fyrir þá sem hafa áhuga.“

Að sögn foreldra, sem ekki vilja láta nafns síns getið, voru drengirnir hvattir til að skrá sig og þeir hafi ekki þorað annað af ótta við að missa sæti sitt í liðinu. Sumir þeirra hafi hvorki haft áhuga né sannfæringu fyrir því að skrá sig í Sjálfstæðisflokkinn, en orð þjálfara og félagslegur þrýstingur innan liðsins hafi att þeim út í það. Foreldrarnir tala um „óbeint og andlegt ofbeldi“ í því samhengi.
Salih Heimir Porca, aðalþjálfari annars flokks, segir það rangt að æfing hafi verið stytt. Æfingarnar séu ávallt á sama tíma. „Ég get sýnt það og sannað. Það er ekkert leyndarmál.“ En hann segist hafa talað við drengina og bent þeim sem væru Sjálfstæðismenn á að kjósa vissa frambjóðendur vegna kosningaloforða. Einnig væri velkomið að þeir sem ekki væru Sjálfstæðismenn myndu skrá sig til að geta kosið. Salih segir:
„Samkvæmt formanni knattspyrnudeildar Hauka er stefna félagsins skýr. Það eru prófkjör og kosningar hjá Sjálfstæðismönnum í Hafnarfirði og við erum að bíða eftir að fá að byggja íþróttahús fyrir Hauka á meðan það er þriðja húsið í gangi hjá FH. Stjórn Hafnarfjarðarbæjar er ekki að gera neitt fyrir Hauka. Stefna félagsins er að gera hvað sem er og kjósa hvern sem er sem vill byggja íþróttahús. Í prófkjöri Sjálfstæðismanna voru frambjóðendur að lýsa því yfir að ef þeir kæmust til valda þá myndu þeir hjálpa til við að byggja húsið.“
Sjálfstæðismenn eru í meirihluta í Hafnarfirði en í júní árið 2017 lentu þeir í andstöðu við samstarfsflokk sinn, Bjarta framtíð, vegna byggingar íþróttamannvirkja. Sjálfstæðismenn vildu byggja tvo yfirbyggða knattspyrnuvelli, á svæðum FH og Hauka, sem hefðu kostað á bilinu 300 til 400 milljónir árlega í fjögur ár. Tillagan var felld með sex atkvæðum gegn fimm á átakafundi og þá hrikti í stoðum meirihlutasamstarfsins.
Er ekki óeðlilegt að íþróttafélag sé að beina stjórnmálalegum tilmælum til drengja?
„Ég spyr á móti. Er það ekki óeðlilegt að FH fékk 1.300 milljónir síðustu 10 ár en Haukar fengu 100 milljónir. Við erum að æfa í 10 stiga frosti stundum. Allir borga skatta á Íslandi. Er það sanngjarnt að Kópavogur eigi tvö íþróttahús og 150 leikmenn í öðrum flokki. Þeir geta smalað öllum bestu knattspyrnumönnum Íslands af því að þeir æfa inni. Á meðan fáum við enga knattspyrnumenn heldur fara þeir allir frá okkur af því að við eigum ekki hús. Ég er frá Bosníu Hersegóvínu sem er rosalega spillt og pólitíkusarnir eru búnir að hirða landið. Þetta er nútímalandið. Af hverju er verið að mismuna krökkum á Íslandi?“
Þá segir Salih alrangt að drengirnir hafi verið beittir óeðlilegum þrýstingi og að foreldrar væru ósáttir. Fundir hafi verið haldnir vegna málsins og Salih játar að eitt og eitt foreldri hafi gert athugasemdir. „98 prósent foreldra eru mjög ánægð og hvetja alla til að kjósa þann sem vill byggja íþróttahús. Ekkert vandamál, ekkert vesen.“
En hvað með þá drengi sem þora ekki annað en að skrá sig vegna félagslegs þrýstings?
„Það er lygi! Meira en helmingur krakkanna eru Sjálfstæðismenn. Þetta er lygi. Það er búið að halda fund um þetta og allt er í góðu. Við stöndum enn þá við þetta og ég hvet alla til að kjósa. Ég myndi kjósa andskotann til að byggja hús í Hafnarfirði.“
Þá segir hann að þetta mál hafi engin áhrif á valið í byrjunarlið annars flokks. Þar sé það einungis frammistaðan inni á vellinum sem ráði úrslitum.