fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Fókus

Vaxstytta af Zendaya skiptir fólki í fylkingar – Er hún lík henni eða ekki?

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 11. febrúar 2022 10:00

Zendaya. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vaxstyttusafnið víðfræga, Madame Tussayds, afhjúpaði á dögunum nýja vaxstyttu af leikkonunni Zendaya.

Hún hefur getið sér gott orð sem leikkona frá barnsaldri og byrjaði á Disney stöðinni. Síðan þá hefur hún átt frábæran feril og leikur meðal annars í nýjustu Spiderman myndinni, Spiderman: No Way Home, og geysivinsælu HBO-þáttunum Euphoria, en önnur þáttaröð er nú í gangi.

Vaxstyttan er í bleikri dragt, eins og leikkonan klæddist á rauða dreglinum árið 2016. En það sem netverjar eru ósammála um er hvort styttan sé gríðarlega lík Euphoria-stjörnunni eða bara alls ekki. Svo voru sumir á báðum áttum.

Til vinstri er nýja vaxstyttan og til hægri er Zendaya árið 2016.

Vaxstyttan skiptir netverjum í fylkingar sem hafa verið duglegir að tjá sig um málið á Twitter.

„Hvernig er þetta líkt henni og bara alls ekki líkt henni á sama tíma? Ef þú „zoomar“ að andliti hennar þá er þetta smá líkt henni en bara alls ekki úr fjarlægð?? Venjulega er það öfugt. Hvað er eiginlega í gangi,“ segir einn netverji.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir
Fókus
Fyrir 4 dögum

Er kallinn sjaldan í kynlífsstuði? Þetta gætu verið ástæðurnar fyrir því

Er kallinn sjaldan í kynlífsstuði? Þetta gætu verið ástæðurnar fyrir því