fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Pressan

Skelfilegt ofbeldismál – 5 ára lokuð inni í skáp vikum saman

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 4. janúar 2022 22:00

Kenneth og Alexandra. Skjáskot/News4Jax

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 14. desember fóru lögreglumenn að heimili Alexandra Ebey og Kenneth Trout í Jacksonville í Bandaríkjunum en tilkynning hafði borist um að hugsanlega væru aðstæður barna á heimilinu ekki upp á marga fiska. Alexandra kom út úr húsinu ásamt fimm ára dóttur sinni og ræddi við lögreglumenn. Þeir sáu að líkamlegt ástand stúlkunnar var greinilega ekki upp á marga fiska.

Í skýrslu sinni segja lögreglumennirnir að stúlkan hafi virst veikburða, horuð og með opin sár víða um líkamann. News4Jax skýrir frá þessu.

Hún var flutt á Wolfson barnasjúkrahúsið þar sem hún fékk viðeigandi meðferð vegna vannæringar og sáranna. Á sjúkrahúsinu sagði hún starfsfólkinu að hún hefði verið bundin og sett í handjárn og lokuð inni í skáp í 25 daga og hefði ekki verið hleypt út úr honum fyrr en fyrir sex dögum. Hún sagði að foreldrar hennar hefðu látið hana hafa fötu til að gera þarfir sínar í.

Nágranni sagði lögreglunni að þrjú önnur börn væru á heimilinu en að fimm ára stúlkan sæist sjaldan.

Í viðræðum við tvo eldri bræður stúlkunnar og eldri systur hennar kom fram að hún fengi oft að finna fyrir því frá foreldrunum og að hún væri alltaf annað hvort í herberginu sínu eða í skápnum.

Annar bróðirinn sagðist hafa gefið henni að borða fyrir nokkrum dögum því hann hafi ekki verið viss um hvort hún fengi yfirleitt neitt að borða.

Nágranninn sagði að bræðurnir hafi eiginlega verið eins og foreldrar fyrir stúlkuna og hafi séð um að búa til mat handa henni.

Alexandra og Kenneth voru handtekin og eru nú í gæsluvarðhaldi. Börnin eru nú í umsjá ættingja nema litla stúlkan en hún liggur enn á sjúkrahúsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tók myndir upp undir kjóla og pils 107 kvenna

Tók myndir upp undir kjóla og pils 107 kvenna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sýknaður af ákæru um ölvunarakstur – Þjáist af „bruggsjúkdómi“

Sýknaður af ákæru um ölvunarakstur – Þjáist af „bruggsjúkdómi“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar