Paris Saint-Germain vann nauman sigur á Angers í frönsku Ligue 1 í kvöld. Leikið var í París.
Það voru gestirnir sem komust yfir á 36. mínútu með marki Angelo Fulgini. Angers leiddi í hálfleik.
Danilo Pereira jafnaði fyrir PSG á 69. mínútu með marki eftir fyrirgjöf Kylian Mbappe.
Það var svo Mbappe sjálfur sem tryggði heimamönnum sigurinn á 87. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Lokatölur 2-1.
PSG er því komið á sigurbraut á ný eftir að hafa tapað gegn Rennes í síðustu umferð fyrir landsleikjahlé.
Liðið er með gott forskot á toppi deildarinnar, með 27 stig eftir tíu leiki.