Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, fagnar 62 ára afmæli í dag. Hún fagnar deginum með því að birta pistil í Morgunblaðið. Að sjálfsögðu heitir pistillinn „Ég á afmæli í dag“.
„„Til hamingju með daginn þinn,“ syngja vinir mínir og nánustu vandamenn og knúsa mig þrátt fyrir Covid eins metra regluna og grímuskylduna. Ég hugsa; það er gott að eiga afmæli. Lífið er ómetanlegt og yndislegt að fá að eldast ef heilsan stendur með manni,“ segir Inga.
Hún segir það gott að vera til fyrir flesta sem búa á Íslandi. Það kemur henni þó á óvart að hún sé komin með grá hár því henni finnst hún vera nýfermd.
„Það er broslegt hvernig umbúðirnar breytast í algjöru taktleysi við eigið sjálf. Kannski er ég háfleyg núna fyrir suma, en það er allt í lagi. Við erum ekki öll eins, sem betur fer,“ segir Inga og hugsar um Ragga Bjarna og Lay Low að syngja lagið Þannig týnist tíminn.
„Það var okkar frábæri listamaður Bjartmar Guðlaugsson sem samdi bæði lag og texta. Og í stað þess að þreyta ykkur með pólitík vil ég nú þegar sumarið stendur sem hæst senda ykkur öllum þetta fallega ljóð. Lesið með bjartsýni, brosi og kærleika að leiðarljósi. Það er mín einlæga og staðfasta trú að okkur muni þrátt fyrir allt argaþras farnast vel sem ein stór fjölskylda sem erum hér saman komin til að vernda og vera góð hvert við annað,“ segir hún og birtir textann af laginu sem situr fast í hausnum hennar.
„Við eigum aðeins eitt líf. Látum það vera til gæfu eins og við best getum. Hendum fordómum, vanþekkingu og leiðindum út um gluggann. Við eigum ekki að gefa neinu slíku eina einustu mínútu af okkar dýrmæta tíma. Afmælisdagarnir hrannast upp á ljóshraða. Sumir eiga erfitt á meðan öðrum líður vel. Þegar upp er staðið þá erum við öll samferða,“ segir hún að lokum.