Garðar Gunnlaugsson knattspyrnumaður er einhleypur. Smartland greinir frá.
Garðar var í sambandi með Fanneyju Söndru Albertsdóttur förðunarfræðing. Saman eiga þau soninn Líam Myrkva, tveggja ára.
Aldursmunur þeirra vakti athygli á sínum tíma, en fimmtán ára aldursmunur er hjá Garðari og Fanneyju.
Fanney var valin Miss Talent Iceland í Ungfrú Ísland árið 2017. Garðar á þrjá syni og eina dóttur úr fyrri samböndum. Hann var giftur Ásdísi Rán Gunnarsdóttur, en leiðir þeirra skildu árið 2012.