fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

Félagsráðgjafi segir venjulega krakka vera að ströggla – „Það spyr enginn, hvernig líður þér?“

Tobba Marinósdóttir
Laugardaginn 21. nóvember 2020 10:30

Eva Rós ráðgjafi hjá Berginu. Mynd: Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eva Rós Ólafsdóttir, félagsráðgjafi hjá Berginu Headspace, segir mikla aukningu í ráðgjafarþjónustu. Ýmislegt sé að valda ungu fólki vanlíðan og mun oftar mætti spyrja það hvernig því líði. Frammi stöðukvíði, einmanaleiki og einangrun ungmenna sem búa við erfiðar aðstæður eru meðal helstu ástæðna. Bergið býður ungu fólki til 25 ára aldurs ókeypis stuðning og ráðgjöf.

Eva segir hópinn sem leiti í Bergið vera fjölbreyttan en þó megi finna samnefnara í vissum erfiðleikum sem hann sé að glíma við. „Hluti hópsins, um 40 prósent, er ungt fólk og börn sem búa við flókinn vanda heima fyrir, svo sem að foreldri eða systkin séu í neyslu og/eða með geðrænan vanda. Hinn hópurinn sem leitar mikið til okkar núna eru ungmenni sem vita ekki hvernig þau eiga að díla við þennan einmanaleika. Við fullorðna fólkið getum tæklað þetta betur,“ segir Eva Rós.

Hún nefnir að fjöldi ungmenna hafi með mikilli tilhlökkun horft til þess að hefja nám í framhalds- og háskólum. Jafnvel flutt milli landsvæða en sitji svo ein og einangruð heima. „Ef maður setur sig í spor þeirra þá blasir þetta við. Fersk byrjun, þú ætlaðir að eignast fullt af vinum í nýja skólanum en kynnist svo engum. Þekkir engan. Þau eru jafnvel að flytja milli hverfa eða utan af landi til að hefja nám.“

Göngutúr ný hugmynd

Eva segist fá alls konar spurningar sem séu þær sömu og við fullorðna fólkið spyrjum okkur. „Hvað verður þetta lengi? Hvernig eigum við að tækla þetta? Unga fólkið sem kemur hingað er mjög ábyrgt og virðast fylgja sóttvarnareglum vel. Ég upplifi þau frekar passasöm en hrædd. Jafnvel of passasöm þannig að þau átta sig ekki á að það eru þó einhverjir sem er í góðu lagi að umgangast.“

Eva Rós segir hreyfingu mjög mikilvæga og þegar hún stingi upp á göngutúr með vini eða vinkonu verði þau hissa. „Þetta er ekki kynslóð sem fer í göngutúra. Þau eru vön ræktinni og æfingum. Sú félagstenging hverfur núna einmitt þegar þau eru í mikilli félagsmótun og hafa mikla félagsþörf.“

Frammistöðukvíði

Eva segist brýna fyrir þeim sem leita til Bergsins að nýta þær félagstengingar sem eru til staðar. „Eins og að læra með ein-hverjum í gegnum Zoom (fjarfundaforrit), þú mátt vera í tengslum við einhvern, nýtum það og hafðu í huga að þetta er tímabil.“

Hún segist einnig heyra að ungu fólki finnist gott að vita að það sé ekki eitt að ströggla. „Að þau séu ekki þau einu sem eru einmana. Svo eru margir sem tala um kvíða tengdan skólanum. Fjöldi nemenda er ekki að fá sömu einkunnir í þessu ástandi.“

Eva segist hvetja námsmenn til að leita til námsráðgjafa og létta á álaginu ef það er óeðlilegt. „Það er enginn að spá í því hvað þú fékkst í algebru á fyrsta ári í framhaldsskóla í COVID. Ef þú ræður illa við það er betra að sinna því vel sem þú ræður við og jafnvel fækka áföngum í einhverjum tilvikum. Frekar að klára eitthvað en ekkert.“

Allt ókeypis 

Eva segir stóran hluta þeirra sem leita til Bergsins vera venjulega krakka sem eru að ströggla. Frá því að Bergið var opnað fyrir rúmu ári hafa yfir 230 ungmenni leitað sér aðstoðar sem sýnir að þörfin er gífurleg. „Þetta er ekki utangarðshópur. Þetta eru yfirleitt virkir krakkar sem eru í skóla og vinnu og eru að bugast. Mestmegnis eru þau á aldrinum 16-25 ára og meira stúlkur. Strákarnir eru seinni að koma. Við myndum vilja fá þá fyrr en þeir harka af sér lengur, sem er ekki jákvætt.“

Hún segir flesta skrá sig í þjónustu í gegnum heimasíðuna bergid.is og fá þá úthlutað ráðgjafa. „Allir ráðgjafarnir eru fagfólk og það kostar ekkert að leita til okkar. Þú mátt koma eins oft og þú vilt. Frábærast við Bergið er að þú mátt koma með hvaða vandamál sem er. Við bregðumst hratt við og oft fær fólk tíma innan nokkurra daga þó að við séum ekki neyðarþjónusta,“ segir hún.

Barn sem umönnunaraðili

Aðspurð um hópinn sem býr við erfiðar heimilisaðstæður, svo sem neyslu eða veikindi foreldra, segir Eva COVID-faraldurinn einangra slík börn og ungmenni enn frekar. „Foreldrarnir eru þá jafnvel í áhættuhóp sem þýðir engar heimsóknir.“

Þar hafa hlutverkin snúist við og barnið er orðið umönnunaraðili foreldris. „Viðkomandi sér um að tryggja velferð veika aðilans en situr oft eftir sjálft. Svo verður viðkomandi 18 ára og er kominn út úr kerfinu. Þá er viðkomandi ekki barn en er að bugast undan álaginu og ekkert grípur þau. Maður hefur áhyggjur af þessum krökkum.“

Rauð flögg

Eva segir ýmsar vísbendingar geta gefið til kynna að vannlíðan hjá ungmennum, og í raun hverjum sem er, séu til staðar. „Oft er það svefninn sem fer úr skorðum. Svefnrútínan breytist og annaðhvort er það lítill svefn eða mikill. Það getur verið vanvirkni af ýmsum toga. Viðkomandi fer lítið, sinnir skóla eða vinnu illa, gerir lítið heima fyrir og hættir jafnvel að þrífa sig.
Í faraldrinum eru krakkar sem hafa alltaf verið í lagi og gengið vel að eiga við vanlíðan sem getur kallað fram spurningar eins og: Er eitthvað að mér? Þetta eru eðlileg viðbrögð við einangrun og djúpri þörf fyrir félagslíf sem er ekki í boði.“

Eva segir mikilvægt að veita umhverfi sínu og fólki athygli og óttast ekki að spyrja út í líðan samferðafólks. „Það er enginn að hlusta á ungt fólk. Þau hafa alls konar skoðanir og vita hvað þau vilja. Þau þurfa að vera meiri þátttakendur í sinni stöðu og það gerist með því að tala við þau. Þegar þau eru spurð hvort þau hafi leitað sér hjálpar áður er svarið oft: Það hlustar enginn á mig, það spyr enginn: Hvernig líður þér?“

En af hverju það svona erfitt að spyrja fólk hvernig því líður? „Oft finnst fólki það óþægilegt að spyrja en ungmennum finnst spurningin kannski kærkomin. Við verðum að spyrja og hlusta. Börn sem búa við erfiðar aðstæður elska samt foreldra sína og eru kannski ekki líkleg til að gefa upp aðstæður sínar eða erfiðleika. Þá er það á hreinu að almenningur á að tilkynna það til barnaverndar og getur gert það nafnlaust.“

Hugrekkið fallegt

Aðspurð segir Eva hugrekki þeirra sem heimsæki Bergið fylla sig innblæstri alla daga. „Ég vann í fimm ár hjá Fangelsismálastofnun svo það eru töluverð viðbrigði fyrir mig að fá fólk í viðtöl eingöngu af fúsum og frjálsum vilja. Ung-menni sem hafa tekið strætó langar leiðir til þess að komast í viðtal að eigin frumkvæði til að segja: Mér líður illa. Það er hugrekki.“

Eva segir vitneskjuna um að viðtalið sé ókeypis létta pressunni af mörgum. „Það tekur pressuna af að vita að þjónustan er frí og þú mátt koma eins oft og þú vilt. Þau koma frekar aftur þegar þau vita að það kostar ekkert. Ef þú vilt koma þá máttu koma óháð því hvert vandamálið er. Við leyfum öllum að koma. Heill vinahópur hefur komið í ráðgjöf en það var kannski bara einn sem þurfti verulega hjálp. Hann hefði samt líklega ekki komið ef ekki hefði verið fyrir meðmæli frá vinum. Það skiptir máli og eru eru bestu meðmælin sem við fáum.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta er umfjöllunin sem María Sigrún fékk ekki birta í Kveik

Þetta er umfjöllunin sem María Sigrún fékk ekki birta í Kveik
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Löggan fellir niður sektir á þá sem voru gómaðir á nagladekkjum í vikunni

Löggan fellir niður sektir á þá sem voru gómaðir á nagladekkjum í vikunni