fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Kæru Sameindar hafnað – Konukot fær að rísa í Ármúla

Ritstjórn DV
Föstudaginn 3. október 2025 09:00

Til vinstri er Ármúli 34 og til hægri er Ármúli 32. Mynd. Skjáskot/Já.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu Rannsóknarstofu Sameindar um að fellt verði úr gildi leyfi byggingarfulltrúa Reykjavíkur til að innrétta húsnæði á 2. og 3. hæð Ármúla 34 undir starfsemi Konukots.

Eins og DV greindi frá þann 11. september síðastliðinn byggðist kæran á því að Sameind, sem er staðsett í húsinu við hliðina í Ármúla 32, taldi að starfsemi Konukots og rannsóknarstofunnar gæti engan veginn farið saman. Töldu forsvarsmenn rannsóknarstofunnar að lífshættulegar aðstæður gætu skapast þar sem ónæmisbældir viðskiptavinir stofunnar, sem sérhæfir sig í blóðrannsóknum, gætu komist í návægi við veika skjólstæðinga Konukots.

„Mikið ónæði og sóðaskapur sem fylgir fyrirhugaðri starfsemi Konukots. Flest allar konurnar eru eiturlyfjaneytendur og eru þær hættulegar sínu nánasta umhverfi. Starfsemi Sameindar rannsóknarstofu er í um 10 metra fjarlægð frá inngangi að Ármúla 34 þar sem fyrirhugað er að starfsemi Konukots verði. Í athvarfi fyrir fíkniefnaneytendur hafa komið upp berklatilfelli á þessu ári og eru þessir einstaklingar tregir til að leita sér meðferðar og eru því oft smitandi. Til Sameindar koma ónæmisbældir sjúklingar að leita sér lækninga og getur það verið lífshættulegt fyrir þá að smitast af berklum. Búast má við því að skjólstæðingar Konukots muni leita inn í biðstofu og salerni Sameindar sem er óásættanlegt. Athvarf fyrir fíkniefnaneytendur og heilbrigðisstarfssemi fara á engan hátt saman,“ sagði í kæru Sameindar.

Tekist á um notkunarflokk

Þá benti Sameind á að byggingarleyfið uppfylli ekki skilyrði byggingarreglugerðar þar sem starfsemi Konukots geti ekki fallið undir almenna gistingu eins og getið sé um í notkunarflokki 4, samkvæmt reglugerðinni. Starfsemin eigi frekar að falla undir notkunarflokk 5 þar sem Konukot sé félagslegt úrræði eða heilbrigðisþjónusta þar sem einstaklingar í mikilli neyslu dvelji. Skjólstæðingar Konukots geti því ekki með nokkru móti bjargað sér af sjálfsdáðum úr mannvirkinu ef til eldsvoða kemur.

Þessu mótmælti Reykjavíkurborg og benti á að í reglugerðinni standi meðal annars um notkunarflokk 4 að hann eigi við um húsnæði þar sem boðin sé tilfallandi gisting. Konukot sé einmitt dæmi um slíkt húsnæði og gert sé ráð fyrir að fólk sem gisti þar sé almennt fært um að bjarga sér sjálft út ef eldsvoði verði.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála tók málið fyrir á fundi sínum í gær og féllst á rök Reykjavíkurborgar í málinu. Kæru Sameindar var því hafnað.

Hér má lesa úrskurðinn í heild sinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kærður fyrir að misþyrma gæludýrinu sínu

Kærður fyrir að misþyrma gæludýrinu sínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kári heggur á hnútinn: Einstaklega ljótt að segja upp Ragnari Frey – Kemur með lausn til framtíðar

Kári heggur á hnútinn: Einstaklega ljótt að segja upp Ragnari Frey – Kemur með lausn til framtíðar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“