fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
Fókus

Hefur ekki haft undan að biðjast afsökunar eftir leguna á gjörgæslu

Fókus
Sunnudaginn 5. október 2025 10:31

Reynir Bergmann Reynisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Athafnamaðurinn Reynir Bergmann Reynisson er óðum að ná fyrri styrk eftir að hafa fengið hjartastopp í lok ágústmánaðar.

Reynir, sem nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum,  lá um tíma þungt haldinn á gjörgæslu.Hann var þó farinn að reita af sér brandaranna um tveimur dögum síðar en svo kom bakslag sem varð til þess að hann var aftur svæfður til að leyfa líkamanum að jafna sig.

Á samfélagsmiðlum er Reynir þekktur fyrir það að láta nánast allt flakka og þrátt fyrir að hann hafi verið frekar ringlaður eftir þessa erfiðu reynslu var hann fljótlega farinn að leyfa fylgjendum sínum að fylgjast með af sjúkrabeðinu á spítalanum og illu heilli, svara skilaboðum þeirra.

Reynir greinir frá því í skemmilegri færslu á samfélagsmiðlum að síðustu dagar hafi farið í það að biðja vini, vandamenn og fylgjendur afsökunar á skilaboðum sem hann sendi frá sér á meðan hann lá á spítalanum.

„Ég var í raun algjörlega út úr heiminum og fjölskyldan vissi ekki í einhverja 19 daga hvort ég myndi í raun ná mér. Ég blaðraði bara samhengislaust og vissi ekkert hvar ég var staddur,“ segir Reynir.

Þá hafi hann verið ansi illskeyttur í skilaboðum til fólks og hraunað yfir allt og allt. Meðal annars kallaði hann blaðamann sem falaðist eftir viðtali „óttalegan brundhaus“ og konu sem tengist honum nánum böndum „helvítis túrkellingu“ í einkaskilaboðum.

„Þetta var ekki ég,“ segir Reynir brosandi í færslunni. Hann hafi verið iðinn við að ausa fúkyrðum við þá sem sendu batakveðjur allt þar til hans nánustu gripu inn í og tóku blessunarlegu af honum öll tæki.

Þegar hann hafði jafnað sig að mestu, eftir tæpar þrjár vikur frá því að hjartastoppið reið yfir, hafi hann hafist handa við  senda afsökunarbeiðni á allmarga. Það hafi verið ærið verkefni og hann því sent áðurnefnda færslu frá sér í von um að afsökunarbeiðnin næði til sem flestra.

Þá segir Reynir að í baksýnisspeglinum hafi hann verið farinn að sýna af sér einkennilega hegðun í aðdraganda hjartastoppsins sem kannski hefði getað gefið vísbendingu um að ekki var allt með felldu. Að auki var hann mjög andstuttur og lystarlaus í kvöldverðaboði á heimili sínu, kvöldið áður en hjartastoppið reið yfir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Handtekinn sama dag og hann var tilnefndur til Grammy-verðlauna

Handtekinn sama dag og hann var tilnefndur til Grammy-verðlauna
Fókus
Í gær

89 ára næringarfræðingur varpar ljósi á hvað hún borðar til að halda heilsunni góðri

89 ára næringarfræðingur varpar ljósi á hvað hún borðar til að halda heilsunni góðri
Fókus
Fyrir 3 dögum

Augnlæknar nefna það sem þeir myndu aldrei gera: „Nudda augun“

Augnlæknar nefna það sem þeir myndu aldrei gera: „Nudda augun“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Henni virðist ætlað að koma inn samviskubiti hjá mæðrum“

„Henni virðist ætlað að koma inn samviskubiti hjá mæðrum“