fbpx
Miðvikudagur 16.júlí 2025
Fókus

Heitar og hæfileikaríkar á lausu

Fókus
Mánudaginn 5. október 2020 20:37

Mynd: Samsett DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í síðasta tölublaði DV birtist frétt um eftirsóttar og einhleypar konur sem eru á lausu. DV hefur fengið veður af því að samfélagsmiðlar kvennana hafi logað í kjölfarið og stefni jafnvel í nokkur áhugaverð stefnumót eftir að sóttvarnartíð lýkur. Í kjölfarið spannst mikil umræða um góðar konur á lausu og þá kom í ljós að þó nokkrar eftirsóttar konur eru á lausu sem ekki voru nefndar í greininni.

Því er hér sjóðheit framhaldsfrétt í flokknum – heitar á lausu:

 

Sóla Káradóttir 
Fyrrum fyrirsætan og fatahönnuðurinn Sólveig Káradóttir, dóttir Kára Stefánssonar er á lausu. Hún er ákaflega listræn og er með munninn fyrir neðan nefið eins og faðir hennar. Sóla eins og hún er kölluð æfði körfubolta á sínum yngri árum með Breiðablik, elskar Kaffibarinn og er fyrrum eiginkona Dhani Harrison, syni Bítilsins George Harrison. Sóla er einn stofnandi Galvan London sem er vinsælt tískumerki.

Sóla Káradóttir. Mynd: GLAMOUR/KIMI HAMMERSTROEM

Sara Oddsdóttir 
Sara er með mastersgráðu í lög­fræði frá Há­skól­an­um í Reykja­vík ný­verið. Hún starfar við and­lega leiðsögn hjá Sól­um. Hún sagði í nýlegu viðtali við mbl.is að hún skilgreindi sig sem stríðsmann ástarinnar eða love warrior. Hún berst fyr­ir sjálfs­ást, umb­urðarlyndi og því að fólk læri að setja heil­brigð mörk og seg­ir að ber­skjöld­un sé styrk­leiki þótt marg­ir haldi annað.

Sara Odds Mynd: Skjáskot Instagram

Kristín Ýr Gunnarsdóttir
Kristín starfar sem almannatengill hjá Aton.JL. Hún starfaði áður sem fréttakona hjá Sýn og þar áður ASÍ. Kristín er mikil útivistarkonar, elskar fjallahjól, hlaup og allskyns útivistarbrölt. Hún er einnig illa haldin af fréttablæti og þykir hrikalega fyndin. Hún er með vottorð upp á mótefni við Covid-19.

Kristín Ýr. Mynd: Skjáskot Facebook

Helga Árnadóttir
Tískudrottningin Helga Árnadóttir oftast kennd við Vero Moda/Best Seller-veldið þykir eldklár í viðskiptum, fagurkeri með einsdæmum og vel tengd. Helga tilheyrir vinkonuhóp sem þykir ákaflega skemmtilegur og hláturmildur.

Helga Árnadóttir. Mynd: Skjáskot Instagram

Tinna Jóhannsdóttir
Tinna starfar sem markaðsstjóri Smáralindar en þar áður var hún markaðsstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar. Hún þykir brosmild með einsdæmum, harðdugleg og lekker. Tinna er með gráðu í viðskiptafræði með áherslu á markaðssamskipti frá Háskólanum á Bifröst og diplomagráðu í mannauðsstjórnun frá Endurmenntun Háskóla Íslands og MBA gráðu. Eldklár og æðisleg.

Tinna Jó – mynd: Smáralind.is

Lilja Ingvarsdóttir
Einkaþjálf­ar­inn og fitness-drottn­ing­in Lilja Ingva­dótt­ir kallar ekki allt ömmu sína. Hún hefur skafið af sér tugi kílóa og þykir grjóthörð í ræktinni en hún er þjálfari í World Class. Lilja er menntaður snyrtifræðingur og heldur úti síðunni liljaingva.is þar sem hægt er að bóka hjá henni tíma í einka- og/eða fjarþjálfun.

https://www.instagram.com/p/CDUfHPXAKXS/?utm_source=ig_web_copy_link

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Nýr kærasti Jennifer Aniston – Heillandi gúru með litríka fortíð

Nýr kærasti Jennifer Aniston – Heillandi gúru með litríka fortíð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Guðni Th. mælir með Þorskasögu

Guðni Th. mælir með Þorskasögu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sambandsráðgjafi: Fjögur merki um að sambandið sé dauðadæmt

Sambandsráðgjafi: Fjögur merki um að sambandið sé dauðadæmt
Fókus
Fyrir 3 dögum

Getur frjókornaofnæmi haft áhrif á leggöng kvenna

Getur frjókornaofnæmi haft áhrif á leggöng kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kynlífsráðgjafi með 45 ára reynslu: Þetta er helsta ástæða framhjáhalds

Kynlífsráðgjafi með 45 ára reynslu: Þetta er helsta ástæða framhjáhalds
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tónlistarhátíð aflýst þegar tilkynnt var um komu Kanye West

Tónlistarhátíð aflýst þegar tilkynnt var um komu Kanye West