fbpx
Mánudagur 05.maí 2025
Fréttir

Örtröð fyrir utan skemmtistaði Reykjavíkur í gærkvöldi – „Engir andskotans tveir metrar í sígóhorninu“

Heimir Hannesson
Laugardaginn 15. ágúst 2020 14:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blaðamaður DV fór á stúfana í miðbæ Reykjavíkur í gær að kanna ástand á skemmtistöðum miðbæjarins. Mikið hefur verið rætt um bágt ástand sóttvarna á eitthverjum stöðum og var m.a. einum veitingastað lokað síðustu helgi af lögreglu vegna brota á sóttvarnarreglum. Hefur lögreglan ráðist í mikið átak þar sem fylgst er með þessum málum.

Svo virðist sem að batnandi ástand innandyra hafi kostað það að ástandið versnaði til muna utan við staðina. Raðir voru lengri og fleiri dvöldu úti þar sem meiri nærvera var möguleg. Einn netverjinn talaði tæpitungulaust í gærkvöldi þegar hann sagði að „engir andskotans tveir metrar væru á milli manna í sígóhorninu.“

Óljóst er hver ber ábyrgð á nefndum útisvæðum. Í tilfellum þar sem borð og stólar eru settir upp utandyra og veitingaleyfi nær út fyrir dyr staðarins mætti e.t.v. færa fyrir því rök að leyfishafinn beri þar ábyrgð á að viðhalda tveggja metra reglu, en þar sem fólk stendur einfaldlega í þvögu utan skemmtistaðar er vafalaust erfiðara að færa þá ábyrgð á herðar veitingamanna.

DV setti sig í samband við lögreglu vegna málsins og spurðist fyrir um ofangreind vafamál, en hefur enn sem komið er ekki fengið nein svör.

DV kannaði meðal annars ástandið á Danska barnum, Röntgen og Kofa Tómasar frænda í gærkvöldi. Allir staðirnir voru með sitt á hreinu að innan, en sem fyrr sagði og sem sjá má á myndunum, var aðra sögu að af ástandinu utan þeirra. Myndirnar hér að neðan segja svo sína sögu:

 

mynd/dv
mynd/dv
mynd/dv

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Velta upp hvort nýir hluthafar þurfi að vera jarðfræðingar – „Áður en jarðhræringarnar urðu þá var Bláa lónið í rauninni peningamaskína“

Velta upp hvort nýir hluthafar þurfi að vera jarðfræðingar – „Áður en jarðhræringarnar urðu þá var Bláa lónið í rauninni peningamaskína“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Fólki hrein­lega blöskr­ar“ – María Rut segir að þessi vinnubrögð á Alþingi mættu missa sín

„Fólki hrein­lega blöskr­ar“ – María Rut segir að þessi vinnubrögð á Alþingi mættu missa sín