fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Páll Óskar segir grein byggða á ranghugmyndum – „Bullandi sleggjudómur yfir öllum hommum í heiminum“

Jón Þór Stefánsson
Laugardaginn 8. ágúst 2020 13:10

Páll Óskar. Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson skrifaði pistil sem ber nafnið „Ég elska að vera hommi“ sem birtist á Vísi í dag. Þar ræðir hann líf samkynhneigðra, og ber saman aðstæður íslenskra homma og bandarískra homma. Páll vitnar í greinina „Why I No Longer Want To Be Gay“, sem hann segir að byggi á ranghugmyndum.

Páll segir að kynhneigð sín sé ekki blóraböggull í lífi sínu. Þegar hann geri mistök þá sé það honum sjálfum að kenna, ekki kynhneigðinni.

„Ég elska að vera hommi. Ég er mjög sáttur í eigin skinni og ég elska hvern dag sem ég lifi. Þess óska ég fyrir alla, sama hver kynhneigðin er. Punktur.

Kynhneigð mín hefur ekkert með það að gera hvort ég kjósi að byggja líf mitt upp – eða rústa því. Ég er frjáls til að gera hvort tveggja eins og mér sýnist. Ég var langt kominn með að rústa lífi mínu um aldamótin 2000, en kaus að byggja það aftur upp á nýtt. Ég er enn að byggja líf mitt upp, enn þann dag í dag. Þessi uppbygging hefur ekki baun með kynhneigð mína eina og sér að gera. Ég myndi aldrei gera þá kröfu til kynhneigðarinnar að hún gerði mig hamingjusaman og sé lykillinn að velferð minni í lífinu. Þar með gæti ég skellt skuldinni á kynhneigðina í hvert sinn sem mér mistekst, fokka upp eða verður á fótaskortur. Kynhneigðin mín á betra skilið en að vera gerð að blóraböggli að öllum mínum bömmerum.“

Páll ræðir þá greinina „Why I No Longer Want To Be Gay“. Hann segir að umrædd grein lýsi ákveðinni menningu í „homma-gettóum“ í stórborgum. Þar ráði brotið fólk ríkjum í heimi sem einkennist einkennist af fíkn og kynlífi.

„Titill amerísku blaðagreinarinnar „Why I No Longer Want To Be Gay“, gerði mig strax forvitinn og um leið sorgmæddan í garð höfundarins. Ég vorkenndi honum, bara við að lesa titilinn. Aumingja höfundurinn að vilja ganga í gegnum þær vítiskvalir að vilja breyta kynhneigð sinni. Ég vil alls ekki stoppa hann frá því. Þetta ferðalag sem hann á fyrir höndum er hans val. En gangi honum vel að hætta að vera gay. Ég vona að hann finni hamingjuna. Ég hef fundið mína. Svo las ég greinina…

Fyrir okkur, sem höfum alist upp á Íslandi, ætti greinin að hafa smá formála:

ATHUGIÐ – Þetta er skrifað af Bandaríkjamanni sem hefur komið út frekar seint í lífinu, þar sem hann hefur auðséð kvalist af efasemdum um sjálfan sig vegna aðstæðna, uppeldis, dómhörku eða trúarskoðana. Einhver hefur verið vondur við hann og plantað í hann efasemdum um sjálfan sig. Hann hefur flúið þetta líf útúr skápnum og sogast í partísenu í homma-gettói í amerískri stórborg. Partísenan er það fyrsta sem blasir við flestum nýjum hommum, nýkomnum útúr skápnum. Fyrstu dagana eru þeir ferskt foldaldakjöt af nýslátruðu. Gaurinn hefur fílað athyglina í botn – fyrstu um sinn – og svo hefur hann orðið fyrir gríðarlegu raunveruleikasjokki…

Lífið í homma-gettóum í stórborgum er vægast sagt mjög dópað, drukkið, alkahólískt, kynferðislegt, fíknað og haldið uppi af mjög brotnu fólki sem venjulega flýr ofbeldið úr smábænum sem það fæddist í. Brotið fólk, með brotna sjálfvirðingu og skakka sjálfsmynd, notar slæmt attitude (e. shading) í gríðarlegri vörn til að hylma yfir sinn eigin andlega sársauka. Flestallt sem gaurinn segir í greininni hittir naglann á höfuðið um amerísku partísenuna (og gay partísenur stórborga um heim allan). En því miður kemur greinin út eins og þessi partí-dóp-sex-lífstíll eigi við um alla homma í heiminum. Þar hefur höfundurinn einfaldlega hræðilega rangt fyrir sér. Þessi grein er bullandi sleggjudómur yfir öllum hommum í heiminum. „Ég vil ekki lengur vera gay af því allir hommar eru dópaðar hórur“.“

Að mati Páls afsanni Facebook-hópur íslenskra homma ranghugmyndir bandarísku greinarinnar. Hann segir að hópurinn hafi sýnt það og sannað að hommar séu gríðarlega fjölbreyttur hópur, ólíkt því sem birtist í áðurnefndri grein.

„Mér finnst allir strákarnir á íslenska Hommaspjallinu á Facebook vera lifandi sönnun fyrir því hvað við erum gríðarlega fjölbreyttur hópur fólks, með mismunandi bakgrunn, skoðanir, drauma, menntun, áhugamál, þarfir og langanir. Einn besti þráðurinn sem hefur myndast þar var þegar spurt var hver væri atvinna okkar og menntun. Fjölbreytnin sem braust fram í svörunum drap niður þessa goðsögn um að allir hommar væru á einhvern undarlegan hátt steyptir í sama mótið. Það gerir höfundur greinarinnar, því miður. Steypir alla homma sem lausláta, dómharða, shallow, líkams og æskudýrkandi dópista og hórur.“

Um skeið grunaði mig jafnvel að þessi „greinarhöfundur“ væri ekki til. Greinin öll væri klæðskerasniðin lygi, hönnuð af þrýstihópum sem finna hinsegin fólki allt til foráttu. Svo mikið er víst, að greinarhöfundur þekkir aðeins eina tegund homma, eða einn ákveðinn afkima menningar hinsegin fólks. Mikið hefði greinarhöfundur gott af því að fara á Gay AA eða Al-anon fund í New York eða eitthvað sem tengist áhugamálunum hans, sama hver þau eru. Í amerískum stórborgum finnur þú alltaf eitthvað hinsegin sem tengist áhugamálunum þínum. Ég get lofað honum því að á þeim stöðum finnur hann allt annað viðmót en á Grindr.“

Þá ræðir Páll um forritið Grindr, stefnumóta- og skyndikynnaforrit fyrir hinsegin fólk. Hann segir að það sé góður möguleiki þegar að „náttúran kalli“. Hann minnist svo á aðra fjölbreytta hluti sem gerist á Íslandi, sem ætti að sjá til þess að engin segi „Mig langar ekki lengur að vera gay“.

„Nú þurfum við íslensku hommarnir – sem höfum ekki ríkulegt aðgengi að hinsegin menningarflóru stórborganna – að passa upp á það að hittast á fleiri stöðum en Grindr og þannig álíka öppum. Auðvitað eigum við að fara á Grindr þegar náttúran kallar og við verðum graðir. Það er frábært að geta krúsað og pantað túrista beint í rúmið með símanum. Það sem er svo magnað við sex öppin er að maður hefur svo sannarlega kynnst fínu fólki þarna inni sem reynast svo vera bestu vinir manns í kjölfarið. Fer allt eftir því hvaða orku þú leggur í þetta samfélag sem er inni á netinu og í símanum þínum. Þú uppskerð það sem þú sáir þarna inni. Jafnvel sálufélaga og kærasta. Jafnt sem fuck buddies.

Ekki gleyma svo öllu hinu frábæra stöffinu sem eru að gerast á íslensku senunni: Hommaspjallið (sem ég elska), Drag-súgur, Pink Iceland böllin, Bears on Ice, Hinsegin Dagar, Reykjavík Pride. Ef við erum duglegir, tökum þátt í Hommaspjallinu og mætum á þessa viðburði, þá verða þeir sjálfsagt fleiri, meira gefandi, meira gaman, meira líf, meiri fjölbreytni, minni einangrun og enginn hérna inni mun nokkurn tíma segja svona bull eins og „Mig langar ekki lengur að vera gay“.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann