fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

„Það verður ekki einkavætt á minni vakt“

Svandís Svavarsdóttir er nýr ráðherra heilbrigðismála

Ari Brynjólfsson
Laugardaginn 9. desember 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir tók við sem heilbrigðisráðherra fyrir rúmri viku. Heilbrigðismálin hafa verið í deiglunni síðustu ár, málaflokkurinn er gríðarlega stór og ljóst að mikið mun mæða á nýjum heilbrigðisráðherra, þeim sjötta á tíu árum, á þessu kjörtímabili. Blaðamaður DV settist niður með Svandísi og ræddi við hana um stöðuna í heilbrigðismálunum, samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn og verkefnin fram undan.

„Gott heilbrigðiskerfi er hjartað í góðu samfélagi, ef við gerum vel við okkar veikasta fólk og fólk sem er slasað þá er samfélagið í lagi. Það skiptir ekki síður miklu máli að horfa til forvarna og lýðheilsu, endurhæfingar og eftirmeðferðar, til að tryggja að fólk komist aftur í gang eftir sjúkdóma og slys. Ég horfi á þennan málaflokk í tengslum við samfélagið allt, það er enginn málaflokkur einangraður,“ segir Svandís. „Heilbrigðismál eru menntamál, samgöngumál, fjölskyldumál og umhverfismál. Þau tengjast nýsköpun og þróun, matvælaframleiðslu, ferðavenjum, vinnulöggjöfinni, búsetu og kynjasjónarmiðum.“ Til dæmis þurfi heilbrigðiskerfið að vera öflugt til að koma í veg fyrir að sumir nemendur hverfi frá námi, heilbrigðismál eru einnig fjölskyldumál í tilvikum þar sem kona af landsbyggðinni og er í áhættumeðgöngu þarf að búa langdvölum í höfuðborginni. „Ég trúi því að ef meginmarkmið okkar er jöfnuður og jafnt aðgengi að þjónustu óháð búsetu og efnahag þá tökum við alltaf bestu ákvarðanirnar.“

Landspítalinn verður við Hringbraut

Svandís tekur við embættinu af Óttari Proppé, í ráðherratíð hans var mikið rætt um einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu.

Nú þegar þú ert komin í heilbrigðisráðuneytið, eigum við von á viðsnúningi í áherslum?

„Viðsnúningur er ekki orð sem ég myndi nota. Hins vegar mun ég láta gera úttekt á þróun einkavæðingar í íslensku heilbrigðiskerfi á undanförum árum til þess að hafa sterkan og öruggan grunn til að byggja ákvarðanir á, því að opinbert heilbrigðiskerfi er fyrir okkur öll, fyrir það er greitt úr sameiginlegum sjóðum og við eigum öll að geta notið þjónustunnar óháð efnahag. Það verður ekki einkavætt á minni vakt.“

„Rafretturnar eru utan allra kerfa“

Staðsetningu Landspítalans hefur borið á góma undanfarin misseri, hefur uppbyggingin við Hringbraut verið gagnrýnd harðlega og lagt til að nýr spítali verði byggður annars staðar. Verður haldið áfram á sömu braut?

„Að sjálfsögðu. Ef við förum að taka upp skipulag og vinnu sem hefur verið í undirbúningi í mörg ár þá værum við enn að fresta uppbyggingu nýs háskólasjúkrahúss. Það er óboðlegt.“

Aðgengi að rafrettum varð nokkuð hitamál á síðasta kjörtímabili, það mál bíður enn afgreiðslu. Verður aðgengi að rafrettum takmarkað?

„Málið hans Óttars er á minni þingmálaskrá þannig að ég geri ráð fyrir að þingið fái að glíma við það aftur. Rafretturnar eru utan allra kerfa, enda tiltölulega nýjar á markaði, og hér er viðleitni til að ná utan um það með einhverju móti.“

Bráðavandi sem þarf að horfast í augu við

Svandís hefur hins vegar mestan áhuga á stóru línunum og að horfa til lengri tíma þegar kemur að uppbyggingu í heilbrigðiskerfinu. „Þá skiptir mestu máli að kalla að borðinu þá sem best þekkja til, bæði landlækni, sérfræðinga, samtök sjúklinga og heilbrigðisstarfsmenn. Það eru tugir þúsunda sem eru með einhverjum hætti þátttakendur í heilbrigðiskerfinu.“

Ný ríkisstjórn leggur mikla áherslu á að gera vel í geðheilbrigðismálum, Svandís hyggst gefa Alþingi skýrslu um stöðu mála. „Við leggjum mjög mikla áherslu á þann málaflokk, það er geðheilbrigðisáætlun sem samkvæmt stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna á að fullfjármagna. Sú áætlun byggir á mjög víðtækri vinnu og mér finnst skipta máli að ég gefi Alþingi skýrslu um þau mál án þess að eftir því sé leitað sérstaklega. Ég mun taka stöðuna á málaflokknum í víðum skilningi, sjúkrahúsþjónustunni og sálfræðiþjónustu fyrir ungt fólk svo eitthvað sé nefnt. Það er bráðavandi sem við þurfum að horfast í augu við.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Það er flókið að vera til“

Andleg heilsa er ekki síður mikilvæg en líkamleg heilsa. Þarna er oft um að ræða birtingarmynd eftir mjög langan aðdraganda sem við þurfum að vera meðvituð um. Aukinn hraði, aukin streita, krafa um frammistöðu á öllum sviðum, miklar kröfur til útlits og pressa frá staðalímyndum. Það er flókið að vera til. Því þurfum við að leggja áherslu á andlega heilsu í okkar heildrænu sýn.“

Til að byrja með á að efla heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað í heilbrigðiskerfinu, meðal annars með því að fjölga sálfræðingum í þverfaglegum teymum sem starfa á heilsugæslustöðvum. Þar að auki á að leggja áherslu á fjölgun sálfræðinga innan framhaldsskólanna, mikil þörf sé á sálfræðiþjónustu á því aldursbili og því sé mikilvægt að nemendur geti gengið að sálfræðingi vísum í skólunum.
Til stendur að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga, þar á meðal verði skoðuð sálfræðiþjónusta, tannlæknaþjónusta fyrir aldraða og öryrkja og ferða- og uppihaldskostnaður fyrir sjúklinga af landsbyggðinni. Þar sem ekki er búið að leggja fram fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár þá getur Svandís ekki nefnt neinar tölur í því samhengi.

Gæta þarf að verðmætamatinu í samfélaginu

Stéttir heilbrigðisstarfsmanna hafa lengi talað um hækkandi meðalaldur, skort á starfsfólki og mikið álag. Svandís segir að umræða um lausn á þessum vanda sé þegar hafin, meðal annars við forstjóra Landspítalans. „Mjög stór hluti af þessu eru kjaramál og lýtur líka að starfsumhverfi fólks, það eru margar byggingar orðnar þreyttar. Svo þarf að laga öryggismál, sérstaklega á geðdeildinni. Þetta hangir allt saman, starfsánægja hangir á þessu öllu. Sem betur fer eigum við gríðarlegan fjölda af öflugu fólki á sviðum heilbrigðismála, menntamála og velferðarmála, sem leggur metnað sinn í að vinna vel í þágu heildarhagsmunanna. Við þurfum að gæta að verðmætamatinu í samfélaginu; það að það sé ekki alltaf betur borgað fyrir að passa peninga en að passa fólk. Þar þurfum við líka að horfa á kynbundinn vinnumarkað og kynbundinn óútskýrðan launamun og kvennastéttir sem eru stórar á þessum sviðum.“

Svandís segir að hún sé í stjórnmálum til að sjá sínar áherslur og áherslur Vinstri grænna ná fram að ganga.
Ekki svik við kjósendur að starfa með Sjálfstæðisflokknum Svandís segir að hún sé í stjórnmálum til að sjá sínar áherslur og áherslur Vinstri grænna ná fram að ganga.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Ekki svik við kjósendur Vinstri grænna

„Það er pólitísk áskorun“

Sem þingmaður Vinstri grænna hefur Svandís, sem og fleiri, gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn harðlega í ræðu og riti. Hefur Svandís meðal annars talað um Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, sem „gangandi hagsmunaárekstur“.

Hvernig er að vera komin í ríkisstjórn með Bjarna Benediktssyni og Sjálfstæðisflokknum?

„Það er pólitísk áskorun. Ég tel að þessi ríkisstjórn geti orðið mjög mikilvægt gæfuspor fyrir Íslendinga á þessum tímapunkti. Með þessum löngu stjórnarmyndunarviðræðum gátum við komið okkur saman um sameiginlegan grunn til þess að sækja fram í öllum þessum helstu þáttum íslensks samfélags. Við þurftum að tala okkur í gengum helstu málaflokkana og koma með sameiginlegan texta á blað sem við gátum öll verið sammála um. Við verðum ekki Sjálfstæðismenn við það, Bjarni Ben verður ekki Vinstri grænn, að minnsta kosti mjög seint,“ segir Svandís og hlær.

Hún lítur ekki á samstarfið sem svik við kjósendur Vinstri grænna. „Glíman sem við höfum verið að heyja við flokkana lengst til hægri, hún er ekki búin, hún verður áfram fyrir hendi. Málamiðlanir þurfum við að gera, en um leið munum við tala skýrt fyrir okkar stefnu. Ég er í stjórnmálum til að ná árangri – fyrir málin og fyrir samfélagið. Ég er í stjórnmálum til að sjá mín áherslumál og áherslumál minnar hreyfingar ná fram að ganga fyrir alla Íslendinga, líka þá sem kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Og ef við náum árangri til að skapa betra samfélag í samstarfi með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki þá gerum við það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum