fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024

Sulta og meira á Sónar

Skoski plötusnúðurinn Denis Sulta er meðal þeirra 23 listamanna sem bættust við dagskrá Sónar Reykjavík í dag

Kristján Guðjónsson
Þriðjudaginn 12. desember 2017 15:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tuttugu og þrír flytjendur bættust í dag við dagskrá tónlistarhátíðarinnar Sónar Reykjavík sem fer fram í Hörpu 16. til 17. mars næstkomandi. Meðal þeirra listamanna sem tilkynnt var að kæmu fram eru skoski húsplötusnúðurinn Denis Sulta, hin fjölmenningarlega tilrauna-r’n’b-tónlistarkona Lafawandah, og breski dubstep-frumkvöðullnn Kode9 sem mun flytja nýtt verk í anda gullaldar japanskra tölvuleikja yfir myndefni frá japanska anime-teiknaranum Kōji Morimoto.

Í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar kemur einnig fram að raftónlistarsíðan Resident Advisor muni stýra sérstakri klúbbadagskrá í bílakjallara Hörpu.

Þeir listamenn sem bætast við dagskrána eru auk hinna þriggja fyrrnefndu Lorenzo Senni (IT), Hildur Guðnadóttir, Moor Mother (US), Klein (UK), Serpentwithfeet (US), JASSS (ES), Lord Pusswhip, Silvia Kastel (IT), Countess Malaise, CAO (PE), Sunna, Julián Mayorga (CO), Intr0beatz, Yagya, Jónbjörn, Skeng, Cold, Andartak og Simon fkndnsm.

Áður hefur verið tilkynnt að Danny Brown, Nadia Rose, Lena Willikens, Bad Gyal, Jlin, Bjarki, Eva808, Högni og JóiPé og Króli komi fram á hátíðinni auk fjölda annarra listamanna.

Hér fyrir neðan má heyra tónlist frá nokkrum af þeim listamönnum sem koma fram á Sónar Reykjavík 2018.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=EHbpt-559xI?rel=0&hd=1&wmode=transparent]

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=1-rEAe4C8gk?rel=0&hd=1&wmode=transparent]
[youtube https://www.youtube.com/watch?v=RIG0NAuary4?rel=0&hd=1&wmode=transparent]
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Besta deildin: Víkingar svöruðu vel fyrir sig gegn KA – Danijel með tvennu

Besta deildin: Víkingar svöruðu vel fyrir sig gegn KA – Danijel með tvennu
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Einkunnir Tottenham og Arsenal – Havertz valinn bestur

Einkunnir Tottenham og Arsenal – Havertz valinn bestur
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Öfgaveður kostaði ESB-ríkin 2.000 milljarða á síðasta ári

Öfgaveður kostaði ESB-ríkin 2.000 milljarða á síðasta ári
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Klípan sem allir Íslendingar lenda í – Á að gefa þjórfé eða ekki?

Klípan sem allir Íslendingar lenda í – Á að gefa þjórfé eða ekki?
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stjarnan tjáir sig eftir ótrúlega umfjöllun blaðamanns: Hótar lögsókn og ásakar hann um lygar – ,,Hef aldrei og mun aldrei gera þessa hluti“

Stjarnan tjáir sig eftir ótrúlega umfjöllun blaðamanns: Hótar lögsókn og ásakar hann um lygar – ,,Hef aldrei og mun aldrei gera þessa hluti“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Conte kominn með nýtt verkefni – Mun gera þriggja ára samning

Conte kominn með nýtt verkefni – Mun gera þriggja ára samning
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Engar mennskar leifar hafa fundist í flaki Titanic – Hvað varð um líkin?

Engar mennskar leifar hafa fundist í flaki Titanic – Hvað varð um líkin?