Saga Garðarsdóttir og Snorri Helgason hafa sett íbúð sína á Ljósvallagötu 8 á sölu. Saga er einn þekktasti grínisti landsins og þá er Snorri tónlistarmaður sem hefur sérhæft sig í þjóðlagatónlist við mjög góðan orðstír.
Íbúðin er á frábærum stað í Vesturbænum. Íbúðin tveggja herbergja og 52,7 m² á stærð. 35,4 milljónir eru settar á íbúðina. Nánar má lesa um íbúðina á fasteignavef Fréttablaðsins.
Eldhúsið er rúmgott með góðri innréttingu og borðkrók. Búið er að opna úr eldhúsi inn í stofu. Stofan er björt og með góðum gluggum. Baðherbergið var endurnýjað fyrir nokkrum árum á mjög vandaðan hátt.
Hjónaherbergið er rúmgott með fallegu útsýni yfir Hólavallakirkjugarð og miðbæ Reykjavíkur.
Saga deildi færslu á Twitter um að íbúðin væri komin á sölu. Hún sagði að fjölskyldan þyrfti að stækka við sig og því væri snubbuíbúðin komin á sölu.
Lítil snubbuíbúð fyrir snubbufólk <3
(Við Snoss og Eddi ætlum að stækka við okkur)https://t.co/UjGsRg7k1m— Saga Garðarsdóttir (@harmsaga) July 1, 2020
Hér má svo sjá nokkrar myndir af íbúðinni.