Fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Ragnheiður Elín Árnadóttir, hefur sagt upp sem verkefnastjóri Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Reykjavík 2020.
Fréttablaðið greinir frá þessu og fær staðfest hjá Sigurjónu Sverrisdóttur, framkvæmdastjóra Meet in Reykjavík og stjórnarformanns kvikmyndaverðlaunanna, sem vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið og vísaði á Örnu Schram, formann stjórnar.
Segir hún von á tilkynningu um málið síðar í dag.
Ragnheiður Elín var ráðin í júlí í fyrra og var valin hæfust alls 45 umsækjenda.
Hlutverk Elínar sem verkefnisstjóra var að vinna að undirbúningi hátíðarinnar í samráði við stjórn verkefnisins og Evrópsku kvikmyndaakademíunar.
UPPFÆRT
Ragnheiður hefur tjáð sig um málið á Facebok þar sem fram kemur að upsögn hennar hafi komið til vegna samstarfsörðugleika við Örnu Schram, formann stjórnar verkefnisins.