fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Ragnheiður Elín ráðin í starf verkefnastjóra

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 4. júlí 2019 17:00

Ragnheiður Elín Árnadóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra Sjálfstæðisflokksins, hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Reykjavík 2020. Alls sóttu 45 um starfið en sjö drógu síðar umsóknir sínar til baka. Hlutverk verkefnastjóra er að vinna að undirbúningi hátíðarinnar í samráði við stjórn verkefnisins og Evrópsku kvikmyndaakademíuna.

Helstu verkefni sem eru framundan er að leiða saman samstarfsaðila, halda utan um samningagerð, afla styrkja, og vinna drög að styrktar- og kynningarstefnu verkefnisins. Það var mat stjórnar að Ragnheiður Elín uppfyllti best þær hlutlægu og huglægu kröfur sem settar voru fram í starfslýsingu. Verkefnastjóri vinnur samkvæmt fyrirliggjandi verkefna- og fjárhagsáætlun og ber ábyrgð gagnvart stjórn verkefnisins.

Ragnheiður Elín er með MS-próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown University í Bandaríkjunum og BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún er fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra og hefur fjölþætta reynslu af skipulagningu og stjórnun viðamikilla verkefna, bæði hér heima og erlendis. Hún þekkir vel til stjórnsýslu kvikmyndamála og málefna ferðaþjónustunnar sem fyrrverandi ráðherra. Hún hafði yfirumsjón með þátttöku Íslands í Heimssýningunni í Lissabon í starfi sínu hjá Útflutningsráði á sínum tíma og hefur frá því hún lét af störfum sem ráðherra sinnt ýmsum alþjóðatengdum verkefnum.

Evrópsku kvikmyndaverðlaunin (EFA) verða veitt í Hörpu í desember 2020 og er húsið forsenda þess að hægt sé að halda viðburð sem þennan á Íslandi. Verkefnið er viðamikið samstarfsverkefni ríkis og borgar en í stjórn þess eru: Arna Schram, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, sem jafnframt er formaður stjórnar fyrri hluta starfstímans er fulltrúi ráðuneytisins tekur við formennsku, Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, Marta Guðrún Skúladóttir, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, Huld Ingimarsdóttir, skrifstofustjóri fjármála og rekstrar hjá menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og Sigurjóna Sverrisdóttir, tilvonandi framkvæmdastjóri Meet in Reykjavík.

Hátíðin er haldin annað hvert ár í Berlín en þess á milli til skiptis í öðrum borgum Evrópu. Hátíðin og hliðarviðburðir henni tengdir munu laða að sér fjölmarga erlenda gesti og er vonast til þess að hún stuðli að öflugri kynningu og markaðssetningu á Íslandi og Reykjavík sem áfangastað og tökustað fyrir kvikmyndir. Tímasetning hátíðarinnar hentar vel en desember er yfirleitt sá mánuður þar sem líklegt er að slíkir viðburðir hafi hvað jákvæðust áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf auk þess sem margvísleg mikilvæg tækifæri gefast til þess að vekja athygli á íslenskri menningu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 5 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega