fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
Fréttir

Matur og drykkur hækka mest í verði

Auður Ösp
Laugardaginn 23. maí 2020 21:45

Neytendur - hafið augun opin fyrir tilboðum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ef við tökum bara mat síðustu tvo mánuði. Það er 1,3 prósenta hækkun á mat og drykkjarvöru á milli apríl og mars og ef við tökum breytingu frá febrúar fram í apríl er breytingin 1,8 prósent,“ segir Hjalti Óskarsson, sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands.

Verðlagseftirlit ASÍ hefur að undanförnu fengið tilkynningar um verðhækkanir hjá bæði matvöruverslunum, birgjum og framleiðendum og hafa ýmsar vörur hækkað allduglega. Fall krónunnar hefur vissulega haft áhrif en þó eru dæmi um að gengisfallið sé hreinlega notað sem skálkasjól fyrir verðhækkanir.

Þetta er síðasti hluti af þremur í úttekt helgarblaðs DV á nýlegum verðhækkunum og breytingum á markaði.

Hagstofan með puttann á púlsinum

Hjalti segir stofnunina ekki hafa orðið vara við að almennar hækkanir næmu 10-20 prósentum, en dæmi er um slíkar hækkanir hjá verslunum á síðustu vikum.

Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni geta umtalsverðar verðhækkanir á neysluvöru, eðlilega, haft áhrif á vísitölu neysluverðs. Hins vegar vegi þá þyngra almennar hækkanir en ekki hækkanir á einstaka vörum.

Hagstofan fær upplýsingar um verð ýmist frá söluaðilum, stundum koma upplýsingarnar af heimasíðum söluaðila og í öðrum tilvikum er falast eftir upplýsingum með símtölum frá Hagstofu.

Matur og drykkur hækkaði mest

Verðbólga var 2,2 prósent í apríl sem er undir verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. Vísitala hækkaði um 0,48 prósent frá fyrri mánuði (apríl.)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Keyrði viljandi á bíl í Kömbunum svo hann lenti utan vegar

Keyrði viljandi á bíl í Kömbunum svo hann lenti utan vegar
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Brottrekstur Úlfars gagnrýndur – „Bendir til þess að stjórnvöld leggi meira upp úr því að fela vandann en að taka á honum“

Brottrekstur Úlfars gagnrýndur – „Bendir til þess að stjórnvöld leggi meira upp úr því að fela vandann en að taka á honum“
Fréttir
Í gær

Sigurbjörg er enn á götunni og engin lausn í sjónmáli

Sigurbjörg er enn á götunni og engin lausn í sjónmáli
Fréttir
Í gær

HR sendi nemanda með prófkvíða í tvö sjúkrapróf sama daginn

HR sendi nemanda með prófkvíða í tvö sjúkrapróf sama daginn