fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Ágúst Ólafur segir þessar tíu leiðir koma í veg fyrir atvinnuleysi

Jón Þór Stefánsson
Laugardaginn 18. apríl 2020 11:10

Ágúst Ólafur lýsir eftir umhverfisráðherra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, birti í dag færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann talaði um atvinnuleysið sem er að koma í kjölfar COVID-19 faraldursins. Hann sagði að atvinnuleysi væri slæmt fyrir alla og spurði sig hvað væri til bragðs að taka.

„Í dag er veiran óvinurinn. En hún er ekki eini óvinurinn. Atvinnuleysi er einnig óvinur okkar þessa dagana. Við þann óvin getur einnig verið erfitt að eiga við. Atvinnuleysi fer nú hratt vaxandi og stefnir í að vera tvöfalt meira en í bankahruninu. Tugþúsundir Íslendinga eru eða eru á leiðinni að verða atvinnulaus. Allir Íslendingar munu kynnast atvinnuleysi eða einhverjum sem verður atvinnulaus/-lítill á næstunni.

Atvinnuleysi er ömurlegt fyrir alla, sérstaklega fyrir þann sem fyrir því verður og fjölskyldu. Það er einnig ömurlegt fyrir samfélagið og hagkerfið. Og það er ömurlegt fyrir ríkiskassann. Hvað getum við gert?“

Þá birti Ágúst tíu hugmyndir sem hafa það allar að markmiði að vinna gegn atvinnuleysi. Meðal hugmynda Ágústs var að fjölga opinberum starfsmönnum, ráðast í opinberar fjárfestingar, hafa listamenn á listamannalaunum og fleira.

1. Fjölgum opinberum starfsmönnum. Það þarf fleiri opinbera starfsmenn, hvort sem litið er til hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, sjúkraþjálfara, lækna, barnaverndarfólks, félagsfræðinga, sálfræðinga eða annara starfsmanna í heilbrigðis- og félagsþjónustu, kennara og skólaliða í menntakerfinu eða lögreglumanna, leikara, vísindamanna og annarra opinberra sérfræðinga. Með því sköpum við ekki einungis störf heldur bætum við þjónustu við okkur sjálf, hvort sem við erum eldri borgarar, sjúklingar, nemendur eða allur almenningur sem nýtur góðs af öflugri opinberri þjónustu. Þetta geta stjórnvöld hæglega gert en erfiðara getur verið að fjölga störfum fljótt í einkageiranum þótt það þurfi einnig.

2. Galopnum skólanaokkar fyrir atvinnulausa og atvinnulitla. Stóreflum möguleika á endurmenntun og símenntun hvort sem það er á sviði starfs-, iðn- eða bóknáms. Lítum á nám sem vinnumarkaðsaðgerð en þetta gaf góða raun í síðasta hruni. Tryggjum að fólk án atvinnu geti stundað nám og fengið samhliða greiddar atvinnuleysisbætur.

3. Ráðumst í opinberar fjárfestingar.Höfum þær miklu stærri en það sem ríkisstjórnin hefur nú þegar kynnt. Höfum fjárfestingar grænar sem höfða til allra kynja og allra landshluta. Hugsum eins og Roosevelt fyrir tæpum hundrað árum sem þurfti að bregðast við kreppunni miklu. Það er í góðu lagi að skuldsetja hið opinbera í svona ástandi, til að fjárfesta í innviðum. Það á meira að segja að skuldsetja hið opinbera í svona árferði.

4. Eflum nýsköpunar- ogrannsóknarsjóði. Með því geta frumkvöðlar og námsmenn rannsakað og skapað á meðan litla vinnu er að fá. Við vitum ekkert hvaða fyrirtæki verður næsta Marel eða Meniga. En við vitum að slík fyrirtæki þurfa oft opinbera sjóði til að lifa af fyrstu mánuðina. Nýsköpun er töfraorðið í kreppu og er besta fjárfestingin. Hækkum einnig þakið á endurgreiðslum vegna þróunarkostnaðar fyrirtækja og styrkjum kvikmyndasjóð og endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar. Slíkt mun laða að mikilvæg verkefni og skapa störf. Þetta styrkir einnig ferðaþjónustuna þegar hún rís á nýjan leik.

5. Stóraukum grænmetisframleiðsluá Íslandi með niðurgreiddri orku. Slíkt skapar störf og eykur sjálfbærni og dregur úr kolefnisútblæstri.

6. Höfum listamenn á listamannalaunumí stað þess setja þá á atvinnuleysisbætur. Ég hef áður kynnt þessa hugmynd sem fékk ótrúlega mikinn stuðning á meðal fólks. 1%-stig í auknu atvinnuleysi kostar jafnmikið og að tífalda fjölda listamanna á listamannalaunum. Sköpum list, og um leið störf, umsvif og tekjur. Við vitum ekkert hver verður næsta Hildur Guðna eða Arnaldur Indriða en þau voru bæði á listamannalaunum í upphafi síns ferils.

7. Eflum vinnumarkaðsúrræðiþar sem fyrirtæki og stofnanir geti ráðið tímabundið til sín fólk í atvinnuleit þannig að atvinnuleysisbætur fylgi því inn í fyrirtækið ásamt mótframlagi í lífeyrissjóð. Atvinnurekandinn greiðir það sem upp á vantar svo viðkomandi njóti sambærilegra launakjara og aðrir á vinnustaðnum.

8. Styrkjum sveitarfélögintil að halda úti öflugu opinberu þjónustustigi. Ríkisvaldið er miklu öflugra en einstök sveitarfélög og látum ríkið taka stærsta höggið á sig. Til þess er það og ríkið getur það.

9. Eflum fæðingarorlofið. Hvernig tengist það atvinnuleysi? Jú, gerum fólki kleift að vera lengur utan vinnumarkaðarins á tekjum og vera heima hjá nýfæddum börnum. Og fjölgum landsmönnum.

10. Í síðasta hruni bjargaði ríkið innlendu bönkunum. Ríkið ætti núna að standa að ríkisstyrktri ferðaþjónustuí sumar í samráði við hagsmunasamtök greinarinnar með beinum styrkjum. Við munum öll sækja Ísland heim í sumar og látum ríkið hjálpa til á meðan við erum að komast yfir erfiðasta hjallann.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“