Frá og með síðdegis á morgun er í raun hvergi ferðaveður á landinu og höfuðborgarsvæðið sleppur ekki við óveðrið, að sögn Haraldar Ólafssonar veðurfræðings. Norðanviðri hefur tilhneigingu til að fara mildari höndum um höfuðborgarbúa en til dæmis Norðlendinga og víst er að það mun snjóa og rigna gríðarlegar í vonda veðrinu fyrir norðan og vestan, en ekki á suðvesturhorninu.
Haraldur bendir á að þar sem vinurinn sé af hánorðri og norðvestri sé ekki hægt að reiða sig á skjól fyrir vindinum eins oft í norðanátt, sérstaklega þegar blæs úr norðaustri.
Haraldur telur að mikill sjógangur geti hlotist af óveðrinu í Reykjavík. Hann hefur dregið saman veðurhorfurnar næstu sólarhringa með eftirfarandi pistli fyrir lesendur DV:
Reykjavík
Versta veðrið verður frá því síðla dags á þriðjudag (10. des) og fram eftir nóttu. Það verður enn hvasst fram eftir miðvikudegi, en lægir þó smám saman.
Það verður líklega langhvassast í grennd við Esjuna, einkum á Kjalarnesi. Þá verður mjög hvasst á Seltjarnarnesi, í vesturbæ og miðbæ og líklega austureftir meðfram norðurstönd borgarinnar. Vindur verður af hánorðri eða NNV og viðbúið er að strengurinn nái austar í borginni en hann gerir oftast í NA-átt þegar austurhluti borgarinnar er gjarnan í sæmilegu skjóli. Norðanáttarskjólið í Reykjavík virkar með öðrum orðum ekki sérlega vel að þessu sinni.
Það má búast við verulegum sjógangi þar sem vindur stendur af sjó.
Meðalvindhraðinn fer líklega víða yfir 25 m/s í byggð og yfir 35 m/s í hviðum (hvassara á Kjalarnesi) og það má búast við foktjóni. Það getur reynst varasamt að vera úti við.
Landið í heild sinni
Það verður bálhvasst á öllu landinu og sumsstaðar ofsaveður. Óveðrið verður verst V-lands frá því síðdegis á þiðjudag og fram á nótt, en A-lands verður hvassast aðfaranótt miðvikudags og fram eftir miðvikudagsmorgni. Það er glórulaust að ferðast í þessu veðri. Það verður mikil ofankoma fyrir norðan, en það gæti blotnað um tíma í snjónum alveg niðri við sjávarmál.
Eftir óveðrið gengur hann í norðanátt með hörkufrosti um allt land. Það gæti borgað sig að hreinsa snjó og krapa svo ekki verði klakastykki úr.