fbpx
Mánudagur 05.maí 2025
Kynning

Atómstöðin – endurlit, frumsýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins föstudaginn 1. nóvember 

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 29. október 2019 13:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 
Þjóðleikhúsið frumsýnir Atómstöðina – endurlit, á Stóra sviðinu þann 1. nóvember næstkomandi. Halldór Laxness Halldórsson (Dóri DNA) semur, í samvinnu við Unu Þorleifsdóttur leikstjóra, nýtt og framsækið sviðsverk byggt á skáldsögu Nóbelskáldsins afa síns. Í þessari leiksýningu skoðar ný kynslóð leikhúslistafólks verkið í sögulegu samhengi og skapar krassandi og ögrandi sýningu, fulla af húmor. 

  • Ný kynslóð leikhúslistafólks nálgast skáldsögu Nóbelskáldsins á ferskan og krassandi hátt 
  • Halldór Laxness Halldórsson (Dóri DNA) skrifar leikverk byggt á skáldsögu afa síns  
  • Ebba Katrín Finnsdóttir þreytir frumraun sína í Þjóðleikhúsinu í hlutverki Uglu og Björn Thors leikur Búa Árland  
  • Una Þorleifsdóttir setur upp sína sjöttu sýningu í Þjóðleikhúsinu  

 

Skáldsaga Nóbelskáldsins Halldórs Laxness Atómstöðin var afar umdeild þegar hún kom út árið 1948, enda fjallaði hún um mikið hitamál í íslensku samfélagi, herstöðvarmálið, sem snerist um „sölu landsins“ eða „þátttöku þjóðarinnar í vestrænu varnarsamstarfi“, eftir því hvar fólk skipaði sér í fylkingar. Verkið er þó ekki síður ástarsaga Uglu, bóndadóttur að norðan sem kemur til Reykjavíkur til að læra á orgel, og Búa Árlands, þingmanns og heildsala. 

 

Halldór Laxness Halldórsson semur nýtt leikverk, í samvinnu við Unu Þorleifsdóttur leikstjóra, þar sem þau nálgast skáldsögu Halldórs Laxness á ferskan og óvæntan hátt. Brugðið er nýju ljósi á umrót eftirstríðsáranna þar sem þjóð í litlu landi, mitt á milli Washington og Moskvu, stóð frammi fyrir stórum spurningum um framtíð sína. Í brennidepli í verkinu eru þjóðernisvitund og sjálfsmynd, tengsl litlu eyþjóðarinnar við umheiminn og hin eilífu átök auðstéttar og alþýðu. 

 

Þetta er sjötta leikstjórnarverkefni Unu við Þjóðleikhúsið en áður hefur hún sett upp sýningarnar Konan við 1000°, Tímaþjófinn, Gott fólk, Harmsögu og Óvin fólksins. Halldór Laxness Halldórsson hefur getið sér gott orð sem uppistandari, handritshöfundur og ljóðskáld, en skrifar nú í fyrsta sinn leikverk fyrir Þjóðleikhúsið. 

 

Höfundur leikmyndar og búninga, Mirek Kaczmarek, starfar nú í fyrsta sinn við Þjóðleikhúsið en hann á að baki um 200 leiksýningar í Póllandi, og hefur starfað með mörgum af virtustu leikstjórum pólsks nútímaleikhúss.  

Hann var höfundur leikmyndar og búninga í sýningu Unu Þorleifsdóttur á ≈ [um það bil] í Kielce í Póllandi fyrr á þessu ári. 

Ebba Katrín Finnsdóttir þreytir frumraun sína í Þjóðleikhúsinu í hlutverki Uglu, en hún vakti meðal annars athygli fyrir leik sinn í sjónvarpsmyndinni Mannasiðum, og var tilnefnd til Grímunnar 2019 fyrir leik sinn í söngleiknum Matthildi. Með hlutverk Búa Árlands fer Björn Thors. 

Boðið verður upp á umræður eftir 6. sýningu á Atómstöðinni fimmtudagskvöldið  21. nóvember. 

 

Leikarar í sýningunni eru Ebba Katrín Finnsdóttir, Björn Thors, Birgitta Birgisdóttir, Arngrímur Ernst Backman, Snæfríður Ingvarsdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Eggert Þorleifsson, Hallgrímur Ólafsson, Oddur Júlíusson, Snorri Engilbertsson, Stefán Jónsson og Hildur Vala Baldursdóttir.  

  

Leikstjóri: Una Þorleifsdóttir  

Leikgerð: Halldór Laxness Halldórsson, í samvinnu við Unu Þorleifsdóttur   

Leikmynd og búningar: Mirek Kaczmarek  

Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson  

Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson  

Hljóðmynd: Aron Þór Arnarsson, Kristinn Gauti Einarsson, Gísli Galdur Þorgeirsson 

Leikgervi: Ingibjörg G. Huldarsdóttir 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
28.06.2024

Komdu með til Verona, Ítalíu í sumar!

Komdu með til Verona, Ítalíu í sumar!
Kynning
18.06.2024

Mikilvægt að byrja snemma að spá í lífeyri – Því yngri, því meira færðu fyrir 1.000 kallinn

Mikilvægt að byrja snemma að spá í lífeyri – Því yngri, því meira færðu fyrir 1.000 kallinn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr