fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024

Morð í Maine

Atvinnlaus kokkur gekk berserksgang – Varð fjórum að fjörtjóni

Kolbeinn Þorsteinsson
Laugardaginn 17. júní 2017 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Christian Nielsen, rúmlega þrítugur atvinnulaus kokkur, hafði daðrað við þá hugmynd að bera fyrir sig geðveiki þegar réttað yrði yfir honum í október 2007.

Einhverra hluta kastaði hann þeirri hugmynd fyrir róða einum degi áður en velja átti í kviðdóm vegna málsins, sem rekja mátti til atburða sem átt höfðu sér stað rúmlega ári fyrr í Newry, skíðasvæði í Maine í Bandaríkjunum.

Fyrsta dag septembermánaðar 2006 hafði morðæði gripið Nielsen og stóð það í fjóra daga. Þann 1. september skaut Nielsen fimmtugan karlmann, James Whitehurst frá Batesville í Arkansas, til bana.

Fátt um skýringar

Síðar gat Christian Nielsen litlar skýringar gefið á morðinu aðrar en þær að James Whitehurst, sem var alltmúligmaður og bjó á Black Bear – Bed and Breakfast líkt og Nielsen, hefði verið fráhrindandi. Eftir að Nielsen myrti Whitehurst sundurlimaði hann líkið og brenndi síðan inni í skógi.

En ekki voru öll kurl komin til grafar því á næstu þremur dögum sendi Nielsen þrjár konur yfir móðuna miklu. Hann myrti Julie Bullard, 65 ára eiganda gistiheimilisins, þrítuga dóttur hennar, Selby Bullard, og vinkonu Selby, Cindy Beatson, 43 ára. Þetta gerði Nielsen til þess að morðið á Whitehurst uppgötvaðist ekki.

Keðjusög og fleiri verkfæri

Lík kvennanna fengu svipaða útreið og lík Whitehurst því Nielsen sundurlimaði þau og notaði til verksins keðjusög, járnsög og ísöxi.

En Adam var ekki lengi í Paradís því að kvöldi verkalýðsdagsins, sem bar upp á 4. september, fyrsta mánudag þess mánaðar, uppgötvuðust ódæði Nielsen.

Nielsen ákvað nefnilega að slá á þráðinn til föður síns og sagði honum að hann sæi um rekstur Black Bear-gistiheimilisins í fjarveru Julie Bullard. Það fannst föður Nielsen ærið tilefni til að líta við hjá drengnum sínum, sem hann síðan gerði ásamt konu sinni.

Skömmu eftir að þau komu á gistiheimilið hringdu þau á lögregluna og segir ekki meira af þeim.

Nokkrar greiningar

Skammbyssa Nielsen fannst á gistiheimilinu og hann játaði á sig morðin. Þegar sakhæfi Nielsen var síðar metið vottuðu nokkrir sálfræðingar að hann glímdi við geðklofa og jafnvel fleiri andleg mein, þar á meðal Asperger’s-heilkenni.

Við þessi tíðindi reyndu verjendur Nielsen árangurslaust að fá ógilta játningu Nielsen og hann úrskurðaðan ósakhæfan. En sem fyrr segir aftók Nielsen á síðustu stundu að leggja í þá vegferð.

Þann 18. október fékk Christian Nielsen lífstíðardóm fyrir fjögur morð. „Mig langar að segja að ég iðrast mjög gjörða minna,“ sagði hann við það tækifæri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Byrjunarlið KR og Breiðabliks – Ísak og Patrik á bekknum

Byrjunarlið KR og Breiðabliks – Ísak og Patrik á bekknum
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

England: Manchester City í engum vandræðum

England: Manchester City í engum vandræðum
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Varar við kínverskri leyniaðgerð

Varar við kínverskri leyniaðgerð
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Lítt þekkt ættartengsl: Sjónvarpskonan sem gustar af og foringi lögfræðinga

Lítt þekkt ættartengsl: Sjónvarpskonan sem gustar af og foringi lögfræðinga
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Byrjunarlið Tottenham og Arsenal – Mikið undir í stórleiknum

Byrjunarlið Tottenham og Arsenal – Mikið undir í stórleiknum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Telur að rifrildið umtalaða í gær tali sínu máli – ,,Sannfærður um að hann sé á förum“

Telur að rifrildið umtalaða í gær tali sínu máli – ,,Sannfærður um að hann sé á förum“