fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Kynning

Kynslóðaskipti og fjölbreyttari þjónusta hjá MD vélum

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 21. september 2019 17:00

Hjalti og Kári á góðri stundu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Jónsson keypti nýverið hlut í fyrirtækinu MD vélum ehf. og mun gegna stöðu rekstrarstjóra og stýra þjónustuverkstæði og viðgerðum ásamt sölu. Fyrirtækið á að baki áratuga sögu í sölu og viðhaldsþjónustu á dísilvélum og túrbínum bæði á sjó og landi. Hjalti Sigfússon, stofnandi og aðaleigandi MD véla, verður áfram hluthafi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins og annast ráðgjöf og fleiri verkþætti í daglegum rekstri. „Við fögnum því að fá Kára aftur til liðs við okkur því hann gjörþekkir fyrirtækið og þjónustu MD véla frá því að hann starfað hér frá 2013 til 2018. Það er ánægjulegt að geta stuðlað að kynslóðaskiptum og tryggt að sú mikilvæga þjónusta sem MD vélar veitir haldi áfram að þróast og byggjast upp,“ segir Laila Hjaltadóttir, viðskiptastjóri MD véla.

 

Sjávarútvegur 2019

MD vélar verður með bás á sýningunni Sjávarútvegur 2019 í Laugardalshöll. „Þar verða fulltrúar okkar helstu erlendu birgja með okkur. Þá koma sérfræðingar frá Mitsubishi, Solé Diesel og VM kompensator. Einnig verður með okkur maður frá GS Hydro, fyrirtæki sem margir þekkja hér á landi. Því er kjörið fyrir viðskiptavini að heimsækja okkur í bás MD véla og fræðast enn meira um möguleikana sem þeim standa til boða,“ segir Laila.

Sole dísilvél.

MD vélar er með umboð fyrir Mitsubishi á Íslandi. Einnig spænska fyrirtækið Solé Diesel sem býður mikið úrval skrúfu- og ljósavéla fyrir smærri báta auk mikils úrvals aukahluta. Þá er MD vélar einnig umboðsaðili fyrir PJ Diesel í Kaupmannahöfn sem sérhæfir sig í endurbyggingum á túrbínum fyrir skip og annast MD vélar viðhaldsþjónustu og endurbyggingu á túrbínum hérlendis, auk þess að selja varahluti í túrbínur. Loks er að nefna umboð MD véla fyrir PJ Woodward sem er sérhæft fyrirtæki í varahluta- og viðgerðarþjónustu á gangráðum.

 

Farsælt samstarf með Mitsubishi

Fyrirtækið var stofnað árið 1990 um sölu, ráðgjöf og þjónustu fyrir Mitsubishi dísilvélar og tilheyrandi búnað á Íslandi og hefur sá þáttur allar götur síðan verið leiðandi þáttur í starfseminni. Í byrjun þessa árs varð sú breyting á þeirri þjónustu að umboðið hér á landi heyrir nú undir öfluga deild Mitsubishi í Noregi sem hefur sérhæft sig í samsetningu vélapakka með öllum þeim aukahlutum sem hver og einn viðskiptavinur óskar eftir. „Við erum mjög ánægð með þá reynslu sem komin er á þessa þjónustu, sem er afar vönduð og fagleg. Með samstarfinu við Mitsubishi í Noregi hafa okkur líka opnast tækifæri til að bjóða öflugar og góðar landrafstöðvar hér á landi en á mörgum sviðum atvinnulífsins er þörf fyrir slíkt. Líkt og í aðalvélunum og ljósavélunum getum við fengið landrafstöðvarnar uppsettar og frágengnar nákvæmlega eins og viðskiptavinurinn þarf á að halda,“ segir Laila.

Landrafstöð í gámi.

Þensla í þjónustu MD véla í þenslutengjum

Annað og vaxandi þjónustusvið MD véla er umboð fyrir danska fyrirtækið VM kompensator sem framleiðir þenslutengi fyrir hvers konar lagnir, stórar sem smáar.

Stáltengi í miklu úrvali.

„Með nýjum samningi við fyrirtækið Metraflex í Chicago aukum við svo enn við úrvalið og þjónustuna í þenslutengjum. Metraflex er í fremstu röð þegar kemur að þenslutengjum fyrir vatnsúðakerfi fyrir byggingariðnaðinn. Tengin eru auðveld í uppsetningu og það fer afar lítið fyrir þeim. Einnig taka tengin á sig mikla hreyfingu sem gerir það að verkum að þau henta til dæmis sérlega vel á jarðskjálftasvæðum,“ segir Laila.

Metraflex tengin taka á sig mikla hreyfingu.

Nánari upplýsingar má nálgast á www.mdvelar.is

Vagnhöfða 12, 110 Reykjavík

Opnunartími skrifstofu: Mán–fös 8.00–16.00

Sími: 567-2800

Netfang: mdvelar@mdvelar.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum