fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Skólastjóri í Hjallastefnunni segir kraftaverkin gerast – „Börn geta borðað allskonar mat“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 28. ágúst 2019 15:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matur í grunnskólum hefur verið á nánast allra vörum síðasta sólarhringinn. Umræðan kom í kjölfar þess að RÚV greindi frá því í kvöldfréttum sínum að einhugur væri meðal meirihluta Reykjavíkurborgar að skoða að minnka framborð á dýraafurðum í grunnskólum borgarinnar. 

Guðrún Silja, skólastjóri Öskju, leikskóla Hjallastefnunnar í Öskjuhlíðinni, skrifar á Facebook-síðu Hjallastefnunnar um málið. Þar segir hún börnin borða grænmetisréttina með bestu lyst en þó sé auðvitað smekkur manna misjafn.

„Á boðstólnum eru grænmetisréttir stundum tvisvar í viku sem börn frá 12 mánaða – 11 ára og kennararnir þeirra borða saman af bestu lyst, auðvitað misvel eins og við erum misjöfn því það gengur víst ekki eitt yfir alla. Vinsælasti rétturinn er t.d. spínatpasta með ferskum parmesanosti og grænmetislasagna kemur þar fast á eftir. Fiskur er afar vinsæll líka og uppáhalds meðlætið með honum er avókadóbaunasalat með kóríander.

Með færslunni birtir Guðrún matseðilinn fyrir vikuna hjá 7 skólum í Hjallastefnunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún bendir á að hægt sé að skoða matseðla fyrir skólana margar vikur aftur í tímann. Þegar matseðlarnir eru skoðaðir má sjá að maturinn er mjög fjölbreyttur og auk þess er mikið um grænmetisrétti.

Matseðill vikunnar í Hjallastefnunni

Guðrún segir allan matinn vera eldaðann frá grunni í Hjallastefnunni en þar er mikið gert upp úr því að börnin fái góðan mat.

„Allt er þetta eldað frá grunni í pínulitlu eldhúsi beint frá hjartanu af tveimur snillingum sem brenna fyrir því að börn borði hollan, góðan og fjölbreyttan mat í skólanum sínum.“

Í lok færslunnar bendir hún fólki á því að börn geti borðað mat af öllum gerðum.

„Já krakkar mínir, kraftaverkin gerast nefnilega. Börn geta borðað allskonar mat.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sjálfstæðismenn í Kópavogi brutu kosningalög – Málið komið á borð kjörstjórnar

Sjálfstæðismenn í Kópavogi brutu kosningalög – Málið komið á borð kjörstjórnar
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

„Þess vegna eru heimgreiðslur snákaolía“

„Þess vegna eru heimgreiðslur snákaolía“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf.

Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf.