Manchester City 2-2 Tottenham
1-0 Raheem Sterling(20′)
1-1 Erik Lamela(23′)
2-1 Sergio Aguero(35′)
2-2 Lucas(56′)
Það fór fram stórleikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er Manchester City og Tottenham áttust við.
Það vantaði ekki fjörið á Etihad völlinn en fyrsta mark leiksins gerði Raheem Sterling fyrir heimamenn með skalla.
Sú forysta entist ekki lengi en stuttu seinna var Erik Lamela búinn að jafna fyrir gestina.
Sergio Aguero gerði svo það sem Sergio Aguero gerir best og skoraði annað mark City eftir fyrirgjöf Kevin de Bruyne.
Tottenham jafnaði svo metin aftur í seinni hálfleik en Lucas Moura gerði annað mark liðsins með skalla.
Markið kom eftir hornspyrnu en Lucas hafði aðeins verið á vellinum í 14 sekúndur og staðan orðin 2-2.
Það leit út fyrir að Gabriel Jesus væri svo að tryggja City sigur með marki í uppbótartíma en það var dæmt af vegna VAR.
Samkvæmt VAR þá fór boltinn í hönd Aymeric Laporte eftir hornspyrnu og markið því dæmt af.