fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
433Sport

Segir afsökunarbeiðni Jóhannesar koma til vegna dellu sem orðið hefur til

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 14. ágúst 2019 10:01

Jóhannes Karl Guðjónsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Jónsson, blaðamaður á Morgunblaðinu skrifar áhugaverðan bakvörð í blað dagsins. Þar fer hann yfir afsökunarbeiðni sem Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA setti fram um helgina.

Bjarki Steinn Bjarkason, ungur leikmaður liðsins var þá tekinn af velli í fyrri hálfleik. Eitthvað sem ekki gerist oft í fótbolta, séu leikmenn heilir heilsu.

Jóhannes var hins vegar smeykur við sterkt lið Breiðabliks og vildi ekki bíða með að breyta, þetta telur Kristján eðlilegan hlut.

,,Hvers vegna er þjálf­ari að biðja leik­mann af­sök­un­ar á því að hann ætli að gera breyt­ing­ar? Jú vegna þess að í knatt­spyrn­unni er löngu búið „að ákveða“ að ekki skuli skipta mönn­um út af fyr­ir hlé nema um meiðsli eða veik­indi sé að ræða,“ skrifar Kristján í blað dagsins.

,,Fyr­ir því er að sjálf­sögðu eng­inn vits­muna­leg­ur rök­stuðning­ur. Þetta er bara dæmi um dellu sem get­ur orðið til í íþrótt­un­um og venj­an er orðin sú að leik­menn eru ekki tekn­ir út af fyrr en eft­ir hlé.“

Gunnar Birgisson fréttamaður á RÚV, sagði í hlaðvarpi Fótbolta.net að þetta væri niðurlægjandi fyrir Bjarka.

,,Fréttamaður RÚV sagði í hlaðvarpi að þetta hafi verið niður­lægj­andi fyr­ir leik­mann­inn. Það kann vel að vera. Ein­mitt vegna þess að þessu eiga menn ekki að venj­ast. Knatt­spyrnu­heim­ur­inn er íhalds­sam­ari en lá­v­arðadeild breska þings­ins.“

,,Ég hef enga trú á öðru en að snjall­ir þjálf­ar­ar sjái eft­ir 25 mín­út­ur í leikj­um hvort leik­menn séu vel upp­lagðir eða ekki. Ef ein­hver er það ekki, eða ræður ekki við and­stæðing­inn sem hann á að stöðva, hvers vegna að bíða með skipt­ing­una? Svo framar­lega sem þjálf­ar­inn hef­ur trú á vara­mönn­um sín­um.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Duran aftur til Evrópu

Duran aftur til Evrópu