Erlendur ferðamaður segist hafa orðið fyrir líkamsárás og þjófnaði á fjórða tímanum í nótt á Laugaveginum. Maðurinn segir að átta menn hafi ráðist á sig og stolið síma hans. Ferðamaðurinn var með nokkra áverka þegar lögregla bar að. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en lítið virðist vitað um meinta gerendur og kemur ekkert fram um þjóðerni þeirra.
Nóttin virðist hafa verið nokkuð erilsöm hjá lögreglu en samtals voru 94 mál skráð frá því síðdegis í gær og fram undir morgun. Önnur hópárás var tilkynnt stuttu eftir þá fyrrnefndu. Kona tilkynnti árás laust eftir hálf fimm sömuleiðis á Laugaveginum. Hún sagði marga menn hafa ráðist á sig. Konan var flutt á slysadeild en áverkar hennar voru minniháttar.
Í morgunsárið, um klukkan hálf átta, var tilkynnt um slagsmál þriggja manna í miðbænum, þar sem tveir réðust á einn. Reyndist þar vera um að ræða ágreining milli manna varðandi vinnu og laun.
Kona var svo handtekin klukkan ríflega þrjú á veitingastað við Naustin 101. Hún er grunuð um að hafa slegið og klórað barþjón í andlitið. Konan var látin laus að upplýsingatöku lokinni. Barþjóninn sagðist ætla sjálfur á slysadeild í skoðun.