Ferðamaður sem komið hefur til Íslands skrifaði áhugaverða færslu inn á Facebook-hópinn ICELAND – tips for travelers. Í færslunni er túristum á Íslandi sagt hvernig best sé að ganga örna sinni úti á landi.
„Ef þú hefur ekki farið, þá skaltu lesa þetta svo þú getir lært að vera virðulegur túristi.“
„Nokkrum fallegum stöðum hefur verið lokað eða aðgangur að þeim takmarkaður vegna þess að fólk er að kúka þar. Ég veit að það hljómar absúrd,“
„Þónokkrar kjörbúðir og bensínstöðvar biðja um 200-300 krónur fyrir afnot að salerni, sem er alls ekkert mikið.“
„Þú munt lenda í aðstæðum þar sem þú þarft að fara á klósettið, en engin aðstaða er í nánd.“
„Vertu undirbúin/nn. Besta leiðin til að kúka úti í náttúrunni er:
1. Vertu með poka og klósettpappír með þér.
2. Kúkaðu í pokann. Já mér er alvara. Ef þú getur það ekki farðu þá eins langt frá náttúruperlunni sem þú ert að skoða og grafðu svo kúkinn, með skóflu.
3. Settu klósettpappírinn þinn svo líka í poka.“
„Við sáum endalaust af klósettpappír úti í náttúrunni á meðan við vorum þarna. Það er ekki í lagi!“
„Ég get með stolti sagt að ég kúkaði í poka á íslandi, ég hélt loforði sem ég sór á flugvellinum.“