fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Pressan

Tölvuþrjótar stálu gögnum um heila þjóð

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 23. júlí 2019 21:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tölvuþrjótar stálu nýlega gögnum um fimm milljónir Búlgara en það svarar til allra fullorðinna í landinu. Þeir hafa nú birt þessi gögn á netinu og eru þau mörgum aðgengileg. Gögnunum stálu þrjótarnir frá búlgörskum skattayfirvöldum.

CNN skýrir frá þessu.

Fram kemur að tvítugur maður, sem starfar við tölvuöryggismál, hafi verið handtekinn og hald lagt á tölvu hans og síma. Saksóknari í höfuðborginni Sofiu segir að tölvan og hugbúnaður í henni hafi verið notaður við tölvuárásina. Búlgarska persónuverndin hefur ákveðið að hefja rannsókn á málinu sem er allt hið vandræðalegasta fyrir yfirvöld.

Sérfræðingar, sem CNN hefur rætt við, segja að mörg tölvukerfi hins opinbera séu úrelt og þá sérstaklega í ljósi þess hversu margar tölvuárásir eru gerðar á opinber kerfi í dag.

Á síðasta ári var þjóðskrá landsins óvirk um tíma eftir tölvuárás. Hér er um stórt samfélagslegt vandamál að ræða sem þarf að bæta úr segja sérfræðingar enda varði þetta öryggi innviða landsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

David endar á Ítalíu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýr ferðamannaskattur vekur reiði – Borgaðu fyrir útsýnið

Nýr ferðamannaskattur vekur reiði – Borgaðu fyrir útsýnið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sagan sem snart heimsbyggðina – Robbie Middleton má aldrei gleymast

Sagan sem snart heimsbyggðina – Robbie Middleton má aldrei gleymast
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Pabbi minn gerði þetta og hann gerði það viljandi,“ var það seinasta sem 12 ára drengurinn sagði áður en hann lést

„Pabbi minn gerði þetta og hann gerði það viljandi,“ var það seinasta sem 12 ára drengurinn sagði áður en hann lést
Pressan
Fyrir 4 dögum

Musk er aftur byrjaður að urða yfir fjárlagafrumvarp Trump – „Þetta er algjörlega sturlað“

Musk er aftur byrjaður að urða yfir fjárlagafrumvarp Trump – „Þetta er algjörlega sturlað“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni