fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Ólafía er nýr aðstoðarmaður Benedikts

Ólafía var formaður VR 2013-2017

Kristín Clausen
Þriðjudaginn 25. apríl 2017 13:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafía B. Rafnsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Benedikts Jóhannessonar fjármála- og efnahagsráðherra.

Ólafía var formaður VR 2013-2017. Frá 2014-2017 var hún varaformaður Landssambands íslenskra verslunarmanna og jafnframt fyrsti varaforseti Alþýðusambands Íslands. Áður starfaði Ólafía m.a. sem framkvæmdastjóri hjá mannauðssviði 365 miðla, deildarstjóri innheimtudeildar Tals, þjónustustjóri Islandia Internet og hjá VR.

Ólafía hefur fjölbreytta reynslu af nefndar- og félagsstörfum. Hún hefur t.a.m. gegnt stjórnarformennsku hjá Rannsóknarsetri verslunarinnar, setið í miðstjórn ASÍ og verið formaður í vinnumarkaðsnefnd og Jafnréttis- og fjölskyldunefnd. Þá hefur Ólafía starfað sem kosningastjóri. m.a. fyrir forsetaframboð Ólafs Ragnars Grímssonar árið 1996 og 2012.

Ólafía lauk MBA-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2012, námi í mannauðsstjórnun við Endurmenntun Háskóla Íslands árið 2005 og verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun við sömu stofnun árið 2004.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann