fbpx
Föstudagur 03.maí 2024
Fókus

Auður kennir Domino´s um að dóttir hennar pissaði á sig

Fókus
Föstudaginn 7. júní 2019 10:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Auður nokkur segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti við pizzastaðnum Domino´s. Hún kvartar sáran yfir móttökum sem hún fékk á veitingastaðnum innan Facebook-hópsins Matartips.

„Við fjölskyldan vorum í bíltúr um Hafnarfjörð og dóttir okkar, 7 ára, þurfti skyndilega að pissa. Við stoppuðum á Domino´s og maðurinn neitaði dóttur minni um að nota WC hja þeim, og hún pissaði á sig!! Er svo reið og ég trúi ekki að þeir bönnuðu henni að fara í WC,“ skrifar Auður þessi.

Færsla hennar hefur vakið gífurleg viðbrögð og hafa nú verið skrifuð um 240 athugasemdir. Sitt sýnist hverjum. „Ég á 3 börn sjálfur og hef alveg lent í svona en hvað kemur Matartips hópurinn þessu við. Alls ekki að reyna að vera leiðinlegur en talaðu við skrifstofuna þeirra eða ertu að vona að fólk hætti að versla við Dominos? Skil ekki alveg,“ skrifar einn maður.

Ein kona sem segist hafa starfað á Domino´s segir þetta ekki óvanalegt. „Var að vinna á Domino´s og það er bara stranglega bannað að leyfa óviðkomandi að fara á bakvið. Braut það nú stundum fyrir börn en það þýddi samt að ég þurfti að biða fyrir aftan á meðan og það eru stundum bara tveir að vinna í einu. Það bitnar á þjónustunni ef einn er að biða eftir einhverjum á klósettinu og það hrúgast allt í einu 10 pantanir inn,“ segir hún.

Önnur kona bendir á að þá hefði nú verið betra að láta barnið pissa utan dyra. „Ég hefði nú bara látið barnið pissa úti í stað þess að láta það pissa á sig. Við höfum oft þurft að hlaupa út úr búð að láta barnið okkar pissa því það var ekki hægt að fara á klósett þar,“ segir sú kona.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Baldvin Z man nákvæmlega daginn sem hann varð vitni að flugslysi

Baldvin Z man nákvæmlega daginn sem hann varð vitni að flugslysi
Fókus
Í gær

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég er náttúrlega helvítis aumingi eins og Íslendingar að nenna ekki að mótmæla“

„Ég er náttúrlega helvítis aumingi eins og Íslendingar að nenna ekki að mótmæla“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Mistök að veita Britney frelsi, segir geðlæknir – „Hún er stjórnlaus“

Mistök að veita Britney frelsi, segir geðlæknir – „Hún er stjórnlaus“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sextug kona sigraði í fegurðarsamkeppni

Sextug kona sigraði í fegurðarsamkeppni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigríður Dögg í óheppilegum árekstri við hunangsflugu – Á lífi en særð eftir atganginn

Sigríður Dögg í óheppilegum árekstri við hunangsflugu – Á lífi en særð eftir atganginn