Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, færði Fjölskylduhjálp Íslands góða gjöf á dögunum; öll ónotuð íþróttaföt og -skó sem hann átti í fórum sínum og meira til. Alls er um ræða tíu stóra kassa af fötum og skóm, yfir 200 kíló, en flest af því er ónotað.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ásgerði Jónu Flosadóttur, starfandi formanni Fjölskylduhjálpar Íslands. Í tilkynningunni kemur fram íþróttafatnaðinum verði úthlutað til skjólstæðinga Fjölskylduhjálparinnar á þriðjudag, frá klukkan 14 til 17, í Iðufelli 14.
Í tilkynningunni segir að Guðjón Valur hafi lengi verið með samninga við stóra íþróttavöruframleiðendur, fyrst Adidas og nú Mizuno. Yfir langan feril hafi því gríðarlegt magn íþróttafatnaðar safnast saman, bæði frá stuðningsaðilum hans sem og þeim félagsliðum sem hann hefur spilað fyrir.
Guðjón Valur er án nokkurs vafa einn allra besti handboltamaður Íslandssögunnar en hann á einnig að baki afar farsælan feril sem atvinnumaður erlendis. Hann flytur frá Þýskalandi til Frakklans, París nánar tiltekið, í sumar. Í tilkynningunni segir að honum hafi fundist gráupplagt að gefa þau föt sem hann hefur ekki not fyrir til góðs málefnis. Fyrir valinu varð Fjölskylduhjálp Íslands því honum var umhugað að fatnaðurinn færi til ungs fólks sem ekki gæti sjálft keypt dýran fatnað.
„Ég get með besta vilja aldrei notað öll þessi föt og aðrir hafa mun meiri not fyrir þetta en ég,“ er haft eftir landsliðsfyrirliðanum í tilkynningunni. „Satt best að segja hafði ég ekki gert mér grein fyrir magninu fyrr en ég fór að taka til fyrir flutningana til Parísar annars hefði ég sennilega verið löngu búinn að gefa þetta til góðs málefnis,“ bætir hann við.
Ásgerður Jóna Flosadóttir veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd Fjölskylduhjálparinnar. „Okkur finnst þetta rausnarleg gjöf frá landsliðsfyrirliðanum,“ segir Ásgerður Jóna. „Við vitum að það er ekki ódýrt að stunda íþróttir, þrátt fyrir opinberan stuðning. Þessi gjöf Guðjóns Vals mun létta undir með mörgum fjölskyldum, það er alveg klárt mál. Við erum honum gríðarlega þakklát.“
Fjölskylduhjálp Íslands hefur frá árinu 2003 úthlutað fatnaði og síðar mat til þeirra sem erfitt eiga í samfélaginu. Fötunum verður sem fyrr segir úthlutað á þriðjudag.