Stan Collymore, fyrrum leikmaður Liverpool, hefur nefnt þann leikmann sem hann vill sjá félagið kaupa í sumar.
Liverpool endaði tímabilið í öðru sæti deildarinnar en er einnig komið í úrslit Meistaradeildarinnar.
Collymore vill sjá Jurgen Klopp leita til Wolves og kaupa miðjumanninn öfluga Ruben Neves.
,,Klopp spyr sig núna: ‘Hvað þurfum við að gera til að vinna deildina?’ sagði Collymore.
,,Hann veit að hann þarf nokkra mikilvæga leikmenn og Ruben Neves yrði frábær fyrir Liverpool.“
,,Hann væri mikilvægur fyrir liðið til að sjá til þess að þeir tapi ekki stigum gegn Manchester United eða Everton.“