Pressan greinir frá því að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sé með mál til skoðunar sem tengist Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra. Segir í frétt Pressunnar að þar sé Bjarna hótað lífláti.
Maðurinn lét ummælin falla í opinni færslu á Facebook þaðan sem hann deildi í opna Facebook-hópa. Í skilaboðunum segir hann Íslendinga ekki þora að myrða Bjarna Benediktsson. Maðurinn deildi frétt frá Kjarnanum um Borgun en salan var umdeild og er enn. Á þeim tíma var Bjarni fjármálaráðherra. Pressan hefur staðfest frá lögreglu að ummælin séu til skoðunar.
Í skilaboðunum segir meðan annars:
„Mann-helvítis-garmurinn, stal þessu af þeim fyrir framan kamerurnar, að ÖLLUM SJÁANDI!
Og enn hafa þeir, í þrælsótta sínum, enga döngun í sér að DREPA HANN OG FRÆNDA!
Íslendingar eru aumingjar!“