fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Matur

Skelfiskmarkaðurinn lokar: Hrefna viss um að reksturinn hefði gengið vel ef það væri ekki fyrir nóróveikina

Ritstjórn DV
Mánudaginn 4. mars 2019 12:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingastaðurinn Skelfiskmarkaðurinn hefur hætt rekstri. Staðurinn opnaði í ágúst á síðasta ári og gekk reksturinn vel eftir opnun. Í nóvember í fyrra tók að halla undan fæti þegar fjöldi gesta staðarins veiktust af nóróveiru eftir að hafa borðað þar skelfisk.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skelfiskmarkaðinum.

Í sameiginlegri yfirlýsingu Matvælastofnunar, sóttvarnarlæknis og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur,  sem gefin var út vegna atviksins, kom fram að virkt móttökueftirlit og matvælaöryggiskerfi væri í gildi á Skelfiskmarkaðnum. Staðurinn var að hluta í eigu matreiðslumeistarans Hrefnu Rósu Sætran, sem í félagi við aðra á veitingastaðina Fiskmarkaðinn og Grillmarkaðinn. Veitingastaðirnir þrír eru reknir af aðskildum fyrirtækjum en meðeigendur Hrefnu að Skelfiskmarkaðnum eru Ágúst Reynisson, Guðlaugur Frímannsson, Axel B Clausen og Eysteinn Orri Valsson. Axel var framkvæmdastjóri og Eysteinn rekstrarstjóri staðarins.

Sjá einnig: Niðurgangur og uppköst fjölda gesta eftir heimsókn á Skelfiskmarkaðinn – Eigendur í áfalli

Hrefna Rósa segir sig og samstarfsfólk sitt hafa gert allt hvað þau gátu til að halda staðnum gangandi,  en því miður hafi hún og viðskiptafélagar hennar á endanum þurft að taka ákvörðun um hvort réttast væri að reyna áfram og vona það besta, eða fara þá leið sem verður farin að loka staðnum.

„Þetta er mjög erfið ákvörðun en blákaldur veruleikinn er sá að þetta ömurlega atvik sem kom upp í nóvember hafði það mikil áhrif að þetta er bara því miður staðan. Salan minnkaði um meira en helming eftir þetta og það setur strik í reikninginn. Eftir þriggja ára undirbúning opnuðum við staðinn á erfiðum tíma og ég held það hafi ekki farið fram hjá neinum undanfarið að það er ekki auðvelt að reka veitingastað í dag og hvað þá þegar atvik sem þetta kemur upp,“ segir Hrefna.

Hrefna segir að hún sé viss um að reksturinn hefði gengið vel ef atvikið hefði ekki komið upp í nóvember.

„Ég er stolt af því sem okkur tókst að gera með staðinn og sé ekki eftir því að hafa farið í þetta verkefni. Eins og vitað er þá gengur ekki alltaf allt upp í viðskiptum og þannig var það í þetta skiptið. En þá er gáfulegt að einbeita sér að því sem gengur vel og það ætla ég einmitt að gera og setja alla mína starfsorku í að leyfa Fiskmarkaðnum og Grillmarkaðnum að halda áfram að blómstra. Staðurinn er því formlega til sölu“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa