fbpx
Miðvikudagur 28.maí 2025
Matur

Kaffihús í Hafnarfirði segir fólki að borga það sem það vill: „Við treystum á örlæti ykkar“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Fimmtudaginn 28. febrúar 2019 12:00

Pálmar Þór Hlöðversson, einn eiganda Pallett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kaffihúsið Pallett í Hafnarfirði hefur bryddað upp á nýjung alla virka daga frá klukkan 8 til 12. Forsvarsmenn kaffihússins leggja niður allar verðskrár á þeim tíma og hvetja viðskiptavini til að borga það sem þeim sýnist fyrir veitingarnar.

„Við erum mjög lítið fyrirtæki og búum til allt frá grunni hér á staðnum, þannig að við treystum á örlæti ykkar,“ stendur í tilkynningu á Facebook-síðu staðarins.

„En við höfum einnig ástríðu fyrir sanngirni og að allir séu velkomnir, þannig að það eina sem við biðjum um er að þið borgið það sem ykkur finnst sanngjarnt,“ stendur enn fremur.

Aðeins er rétt um klukkutími síðan að tilkynningin fór í loftið á Facebook og eru lækin byrjuð að hrannast inn.

„Fallegt,“ skrifar einn fylgjandi kaffihússins og margir smella hjörtu við færsluna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
18.01.2025

Tveggja barna móðir frá Þorlákshöfn átti næstbesta borgarann

Tveggja barna móðir frá Þorlákshöfn átti næstbesta borgarann
Matur
14.01.2025

Piparkökudeigsís er nýjung frá Skúbb

Piparkökudeigsís er nýjung frá Skúbb
Matur
06.10.2024

Fat af soðnum vélindum vekur mikið umtal – „Þetta verð ég að smakka“ – „Heima fór þetta í hundana í bókstaflegri merkingu“

Fat af soðnum vélindum vekur mikið umtal – „Þetta verð ég að smakka“ – „Heima fór þetta í hundana í bókstaflegri merkingu“
Matur
17.09.2024

Skál komin á framtíðarheimili í hjarta miðborgarinnar

Skál komin á framtíðarheimili í hjarta miðborgarinnar