fbpx
Laugardagur 27.desember 2025
Matur

Drakk brjóstamjólk systur sinnar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Laugardaginn 23. febrúar 2019 11:30

Samheldnar systur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið hefur verið rætt um að kraftlyftingafólk drekki nú brjóstamjólk sökum þess hve mikið prótein hún innihaldi. Nú hefur leikkonan Tamera Mowry hugsanlega uppgötvað nýja leið til að losna við kvef – nefnilega að drekka brjóstamjólk.

„Þannig að systir mín þarf nauðsynlega á lækningu að halda. Hún er fárveik og ég sendi henni grein um lækningarmátt brjóstamjólkur og henni fannst í lagi að drekka brjóstamjólkina mína,“ skrifar tvíburasystir hennar Tia Mowry, á Instagram.

https://www.instagram.com/p/BuHygv_lH-Q/

„P.s. Hún hefur smakkað hana áður. Ég meina, hún er tvíburasystir mín,“ bætir hún við.

Tamera lofar síðan mjólkina í myndbandi á Instagram, en þess má geta að Tia eignaðist dóttur í maí í fyrra.

„Guð minn góður. Tia. Þetta er stórkostlegt,“ segir hún. „Brjóstamjólkin þín er besta mjólk sem ég hef smakkað á ævinni. Guð minn góður.“

Brjóstamjólk er mjög næringarrík og er hönnuð þannig frá náttúrunnar hendi að styrkja viðnám ungbarna gegn sýkingum. Þá inniheldur hún ýmis efni sem vinna gegn fjölda bakteríu- og veirusýkinga. Í brjóstamjólk er enn fremur fita, vítamín og steinefni, en eitt hefur hún ekki og það er járn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
16.06.2025

ÓX hlýtur græna Michelin stjörnu – Hosiló bætist við staði sem Michelin mælir með

ÓX hlýtur græna Michelin stjörnu – Hosiló bætist við staði sem Michelin mælir með
Matur
15.06.2025

Þess vegna má ekki skola hráan kjúkling

Þess vegna má ekki skola hráan kjúkling
Matur
18.04.2025

Bakaðu páskahreiður Láru og Ljónsa

Bakaðu páskahreiður Láru og Ljónsa
Matur
17.04.2025

Rjómaostakúla með pekan og trönuberjum

Rjómaostakúla með pekan og trönuberjum
Matur
19.01.2025

Draumabitar Láru

Draumabitar Láru
Matur
18.01.2025

Tveggja barna móðir frá Þorlákshöfn átti næstbesta borgarann

Tveggja barna móðir frá Þorlákshöfn átti næstbesta borgarann
Matur
13.11.2024

Brauðtertunni fagnað með Íslandsmótsverðlaunahöfum og veglegri uppskriftabók

Brauðtertunni fagnað með Íslandsmótsverðlaunahöfum og veglegri uppskriftabók
Matur
06.10.2024

Fat af soðnum vélindum vekur mikið umtal – „Þetta verð ég að smakka“ – „Heima fór þetta í hundana í bókstaflegri merkingu“

Fat af soðnum vélindum vekur mikið umtal – „Þetta verð ég að smakka“ – „Heima fór þetta í hundana í bókstaflegri merkingu“