fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

Njálgur er hvimleiður gestur

Einkenni og meðferð

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 18. desember 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Njálgur er lítill bráðsmitandi sníkjuormur sem getur sýkt fólk á öllum aldri þótt hann sé algengastur í börnum. Barn sem sýkt er af njálg á því auðvelt með að smita t.d. aðra í fjölskyldunni.

Njálgurinn er algengasta sníkjudýrið sem sýkir menn og er þekktur um allan heim sem mjög hvimleiður gestur. Fólk verður fyrir þó nokkrum óþægindum af völdum hans en hann veldur sjaldnast neinum skaða.

Kvennjálgurinn er ca. 10 mm. að lengd, mjór og ílangur en karlnjálgurinn ca. 4 mm. að lengd og oft hlykkjóttur.

Hvernig sýkist maður af njálg?

Egg njálgsins smitast frá endaþarmi sýkts einstaklings í hluti eins og fatnað, rúmföt, leikföng o.fl. og þaðan með snertingu eða með ryki. Eggin geta lifað í 2–3 vikur t.d. á fyrrnefndum hlutum og í feldi húsdýra. Eggin geta einnig borist með innöndun í nef eða munn, þeim er kyngt niður í maga og berast þaðan í þarma þar sem njálgurinn klekst út, oftast innan 2–5 vikna. Algengasta smitleiðin er talin vera frá fingrum upp í munn. Fullþroskaður kvennjálgurinn fer á stjá að nóttu til og fer hlaðinn eggjum að endaþarmsopinu.

En af hverju á nóttunni frekar en öðrum tímum sólarhrings? Það er talið stjórnast af lækkun á líkamshita mannsins á nóttunni. Þegar njálgurinn kemur að endaþarmsopinu verpir hann gríðarlegum fjölda eggja sem setjast í húðfellingarnar þar allt í kring. Ormurinn drepst við þetta. Þess ber að geta að fjöldi ormanna getur líka verið mikill og þeim mun fleiri ormar þeim mun meiri smithætta. Eggin eru umlukin límkenndu efni sem veldur því að þau festast auðveldlega við það sem á vegi þeirra verður, eins og nærföt og rúmföt.

Eggin geta lifað af fyrir utan líkamann í allt að þrjár vikur við stofuhita.

Endursýking getur einnig orðið þannig að eggin klekist fljótt út og nýir ormar fara af stað aftur upp í endaþarminn og vítahringurinn heldur áfram.

Hver eru sjúkdómseinkennin?

Flestir þeir sem sýkjast af njálg finna fyrir miklum kláða við endaþarminn sem ágerist síðla kvölds og á nóttunni.

Límkennda efnið sem umlykur egg njálgsins og hreyfingar kvennjálgsins þegar hann ferðast niður að endaþarmsopinu eru þættir sem valda þeim mikla kláða sem einkennir þennan sjúkdóm. Þessi mikli kláði kallar á að fólk klóri sér og þegar það er gert er hringrásinni gjarnan haldið við. Þessu átta börn sig að sjálfsögðu ekki á og því þarf að beita öllum ráðum til að láta þau hætta klórinu.
Húðin í kringum endaþarminn verður rauð og aum og allt þetta leiðir til óróa og pirrings hjá þeim sem fyrir verður. Hjá kvenfólki gerist það stundum að njálgurinn fer upp í leggöng og veldur þar kláða, bólgu og pirringi.

Svefntruflanir koma oft fyrir og mikill kláði hefur stundum í för með sér sár og e.t.v. sýkingar upp úr því ef ekkert er að gert.

Það eru því sjaldnast hættulegar afleiðingar sem njálgurinn hefur í för með sér en óþægindin eru þeim mun meiri og finnst fólki þetta hinn ógeðfelldasti sjúkdómur og vill þegar hann uppgötvast allt gera til að losna við hann.

Hvernig er sjúkdómurinn greindur?

Sjúkdómsgreiningin er oftast auðveld og felst í því að greina orma og/eða egg við endaþarmsopið. Ormarnir sjást með berum augum við svæðið kringum opið og einnig í saur. Þeir eru litlir, hvítir og mjóir og eru allir á iði. Þegar grunur er um njálgsýkingu hjá barni er best að skoða endaþarmsopið snemma að morgni áður en barnið vaknar. Hentugt er að nota tunguspaða eða álíka áhald, setja gagnsætt límband á það með límhliðina út og strjúka yfir húðfellingar við endaþarminn. Eggin getur læknir auðveldlega greint undir smásjá en ormarnir sjást eins og áður sagði með berum augum.

Hver er meðferðin við njálg?

Meðferðin felst í að drepa njálginn með lyfjum. Hér á landi eru skráð tvö lyf sem það gera. Lyfin heita Vanquin og Vermox og eru hvort tveggja til sem töflur og mixtúra. Vanquin er selt í lausasölu í apótekum en til að fá Vermox þarf fólk að fá lyfseðil frá lækni.

Hvaða fleiri ráðstafanir þarf að gera til að útrýma njálg fullkomlega?

Það að gefa lyfin er ekki nægileg ráðstöfun því ekki er síður mikilvægt að gæta fyllsta hreinlætis.

Þvo skal sitjanda og húðsvæðið í kring daglega með vatni og sápu.
Hendur skal þvo oft, sérstaklega eftir klósettferðir.
Halda skal nöglum hreinum og stuttum.
Passa skal að börn setji fingur ekki upp í munninn.

Sofa í náttbuxum eða buxum sem liggja þétt að. Skipta ber um nærföt og náttföt daglega.
Skipta skal um og þvo sængurföt oft. Notuð föt skal þvo sama dag og skipt er um þau.
Baðkar, baðherbergisgólf og salernissetu skal þrífa daglega.
Leikföng, hurðarhúna og aðra hluti sem líklegir smitstaðir eru, skal þvo vandlega.
Við kláða má fjarlægja njálg með snyrtipinna eða einhverju álíka. Njálg er oft að finna í fellingunum við endaþarmsop. Þvo skal svæðið vel á eftir.

Njálgur leggst ekki á gæludýr, en egg þeirra geta leynst í feldi dýranna. Þvoið því hunda og ketti oftar en venjulega.
Ef settum reglum er fylgt þá á útilokun njálgsins að takast með þolinmæði og samviskusemi og ef fólk vill reyna að fyrirbyggja að þessi miður skemmtilegi gestur komi aftur í heimsókn er ekkert eitt ráð til. Ekki er hægt að útiloka alveg að fólk sýkist heldur einungis viðhalda góðu hreinlæti á heimilum og fylgjast afar vel með börnum þar sem smit getur breiðst mjög fljótt út, t.d. á barnaheimilum og í skólum þar sem börn eru oft í mikilli snertingu sín á milli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum