Nú er í gangi hörkuleikur í ensku úrvalsdeildinni en lið Liverpool spilar við Manchester United.
Liverpool komst yfir í fyrri hálfleik með marki frá Sadio Mane eftir fallega sendingu Fabinho.
Ekki svo löngu síðar þá jafnaði United metin er Jesse Lingard potaði boltanum í netið af stuttu færi.
Heppnin var þó með Lingard en Alisson Becker, markvörður Liverpool, gerði sig sekan um slæm mistök.
Alisson ætlaði að grípa fyrirgjöf Romelu Lukaku frá vinstri en missti boltann sem varð til þess að Lingard skoraði.