fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024

Skuggaleg fortíð kærasta Nicki Minaj

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 12. desember 2018 12:48

Kenny Petty Nicki Minaj

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rappdrottningin Nicki Minaj er komin á fast á nýjan leik en kærasti hennar er fertugur og heitir Kenneth Petty. Minaj hefur verið í hópi vinsælustu tónlistarmanna síðustu ára og er hún sú stjarna sem er með einna flesta fylgjendur á Instagram, eða rúmlega 96 milljónir.

Eðli málsins samkvæmt fylgjast slúðurmiðlar vestanhafs með einkalífi hennar og hafa þeir nú grafið upp sitthvað um fortíð Petty.

TMZ greinir frá því að Petty hafi eitt sinn setið í fangelsi í tæp fjögur ár vegna tilraunar til nauðgunar. Er hann sagður hafa ógnað stúlkunni með hníf. Petty og stúlkan voru bæði sextán ára þegar atvikið átti sér stað árið 1994. Petty var sakfelldur árið 1995 og er á skrá yfir dæmda kynferðisbrotamenn í New York-ríki.

Í mars 2006 játaði Petty sig svo sekan af ákæru um manndráp. Skaut hann mann að nafni Lamont Robinson til bana. Hann var ákærður fyrir morð af annarri gráðu en komst að samkomulagi við saksóknara um vægari refsingu gegn því að játa brot sitt. Hann var dæmdur í tíu ára fangelsi og sat inni í sjö ár. Honum var sleppt úr fangelsi árið 2013 en afplánun refsingar var lokið í maí á þessu ári.

Nicki Minaj hefur birt mynd af þeim saman á Instagram og eyddu þau liðinni helgi saman í tilefni af 36 ára afmæli söngkonunnar. Að því er TMZ greinir frá eru Minaj og Petty gamlir vinir og kynntust þau í Queens-hverfinu í New York fyrir margt löngu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Kynntu nýja og byltingakennda krapavél á sjávarútvegssýningunni í Barcelona

Kynntu nýja og byltingakennda krapavél á sjávarútvegssýningunni í Barcelona
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Liverpool frumsýninr treyjuna sem liðið spilar í undir stjórn Arne Slot

Liverpool frumsýninr treyjuna sem liðið spilar í undir stjórn Arne Slot
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Orðið á götunni: Fjármálaráð gefur verkum ríkisstjórnarinnar falleinkunn

Orðið á götunni: Fjármálaráð gefur verkum ríkisstjórnarinnar falleinkunn
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Manowar halda tónleika á Íslandi – Eitt af stærstu þungarokksböndum sögunnar

Manowar halda tónleika á Íslandi – Eitt af stærstu þungarokksböndum sögunnar
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fábjánagangur að mati Jóns – Hallir byggðar fyrir 6 milljarða en hafa ekki efni á samloku á ferðalagi

Fábjánagangur að mati Jóns – Hallir byggðar fyrir 6 milljarða en hafa ekki efni á samloku á ferðalagi
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Rangnick hafnar starfinu hjá Bayern – Sá þriðji sem hafnar eftir viðræður

Rangnick hafnar starfinu hjá Bayern – Sá þriðji sem hafnar eftir viðræður

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.