Eldofninn, Grímsbæ
„Reynsla og tenging við pítsugerð í næstum 30 ár eru á meðal þess sem einkennir Eldofninn. Ellert og Eva voru viðriðin stofnun Eldsmiðjunnar árið 1986. Ég fæddist árið 1987 og þá hoppaði pabbi bara beint á vakt af fæðingardeildinni,“ segir Evert Austmann Ellertsson, bakari hjá Eldofninum í Grímsbæ, fjölskyldufyrirtæki þar sem foreldrar, synir og annað frábært starfsfólk leggur alúð sína í að búa til framúrskarandi pítsur og veita góða þjónustu.
Á Eldofninum eru eingöngu í boði 12” pítsur sem bakaðar eru í eldofni og er eingöngu notaður eldiviður við baksturinn.
Árið 2008, ári áður en Eldofninn var opnaður, fóru hjónin Ellert Austmann Ingimundarson og Eva Karlsdóttir til Ítalíu í leit að hentugum ofni. Þau komu heim með eldofn með snúningsplötu, sem tryggir í senn frábæran bakstur, ósvikið viðarofnsbragð og hraða þjónustu.
„Eftir að við setjum pítsuna inn í ofninn þá ýtum við bara á einn takka, pítsan byrjar að snúast og bakast jafnt og þétt á tveimur mínútum. Snúningsplatan í ofninum skapar sjálfvirka alúð við baksturinn, hægt er að afgreiða pítsurnar mjög hratt en þær eru þó afar jafnt og vel bakaðar. Við getum sett inn átta pítsur í einu en þegar jafn mikið er að gera eins og er núorðið þá þarf að vera með mann á ofninum til að koma pítsunum inn og út. Við búum til allt frá grunni, sósurnar okkar eru án aðfenginna aukaefna og í hana eru notaðir plómutómatar; það sama má segja um hvítlauksolíuna og Eldofnsolíuna okkar sem er sterk chili-olía. Rauðlaukinn skerum við niður hérna og kryddið sem fer í sósuna mallar í potti,“ segir Evert.
En hvaða pítsur eru vinsælastar?
„Vinsælustu pítsurnar eru yfirleitt þær sem eru kenndar við okkur bakarana og við höfum sett saman eftir okkar smekk. Sigga Spes pítsan er til dæmis búin að vera vinsælasta pitsan hér í 3–4 ár en á henni eru sveppir, skorið pepperóní, ananas, svartar ólífur, jalapeno, hvítlaukur, rjómaostur og óreganó. Þessi pítsa slær í gegn hjá öllum og er sívinsæl.“
Veitingasalurinn á Eldofninum er bæði huggulegur og skemmtilegur. Allt er galopið svo viðskiptavinir sjá bakarana að störfum, þeyta pítsum upp í loftið. „Krakkarnir eru mjög spenntir fyrir þessu, til dæmis að sjá pítsurnar snúast í ofninum,“ segir Evert og honum líkar það vel að matargestir sjái fjölskylduna að störfum.
Tíu prósenta afsláttur er veittur af mat sem er sóttur og einnig eru alltaf í gangi hádegistilboð virka daga frá 11.30 til 14 en þá er staðurinn yfirleitt þéttsetinn.
Matseðill og upplýsingar um tilboð má finna á heimasíðunni eldofninn.is
Eldofninn býður einnig upp á ítalska eðalkaffið Italcaffe. Italcaffe S.p.A. er ítalskt kaffibrennslufyrirtæki sem flytur inn gæðabaunir beint frá mörkuðum. Kaffið er síðan ristað samkvæmt bestu ítölsku aðferðum og hefðum og það sett varlega í umbúðir. Beitt er þróuðustu tækni sem völ er á við vinnsluna til að tryggja sem mest gæði.
Um er að ræða tvær tegundir, Espresso Casa og Gran Crema.
Espresso Casa: Annars vegar baunir í 500 g pakkningum og hins vegar malað í 250 g. Þetta kaffi passar í allar kaffivélar nema pressukönnur af því það er svo fínt. Það er framleitt sérstaklega fyrir heimilis-espresso-vélar. Hin tegundin er Gran Crema, sem eru baunir í eins kílós pakkningum. Það er sannkallað sælkerakaffi, kremaðra og bragðmeira.
Eldofninn býður fyrirtækjum og einstaklingum heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu þegar pantaður er kassi eða meira. Italcaffe er selt í Melabúðinni og Kjöthöllinni en er auk þess til sölu í Eldofninum í Grímsbæ.
Eldofninn er opinn mánudaga til fimmtudaga frá kl. 11.30 til 21, föstudaga til kl. 22. Á laugardögum er opið frá kl. 17 til 22 og á sunnudögum frá 17 til 21.
Á mánudögum er lokað – þá hleður Eldofnsfjölskyldan batteríin fyrir hina sex daga vikunnar.