fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
FókusKynning

Íslendingar vilja hollan skyndibita

Kynning

XO: Gómsætar og hollar flatbökur

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 11. nóvember 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flatbökurnar á XO njóta gríðarlegra vinsælda enda hrikalega góðar og hollar í ofanálag sem gerir upplifunina einstaka, bæði fyrir bragðlaukana og líkamann. Súrdeigsbotnarnir í flatbökunum eru sérþróaðir úr heilkornum enda er hvorki hvítt hveiti né hvítur sykur notaður í mat sem XO framreiðir. Flatbökusósan er einnig sérþróuð af XO.

„Það er í tísku að borða hollan mat og Íslendingar eru framarlega hvað varðar heilsu og hollustu. Viðskiptavinir XO vita að hverju þeir ganga og við munum aldrei draga úr gæðum, XO mun ávallt bjóða upp á fyrsta flokks mat úr hágæða hráefni. Án viðskiptavinanna væri XO ekki til og þeir skipta okkur öllu máli,“ segir Gunnar Örn Jónsson, einn eigenda XO veitingastaðar.

Mynd: Copyright:Thorgeir Olafsson

„Vinsælustu flatbökurnar á XO eru Kjúklingaflatbaka Italiano og Humar flatbaka en margir af okkar frábæru viðskiptavinum hafa haft á orði að þessar flatbökur séu þær bestu og jafnvel langbestu flatbökur sem þeir hafi smakkað og hafa þeir margir hverjir ferðast víða,“ segir Gunnar enn fremur.

Kjúklingaflatbaka Italiano inniheldur kjúkling, parmaskinku, mozzarella, kryddolíu, flatbökusósu og ost og er þetta hættulega góð blanda að mati blaðamanns.

Humar flatbakan er líklega ein besta humarflatbaka landsins en á henni eru hvítlaukskryddaðir humarhalar, sveppir, klettasalat, hvítlaukskrem, flatbökusósa og ostur.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Grænmetisflatbakan hefur einnig notið mikilla vinsælda en grænmetisætum hefur fjölgað mikið undanfarin ár.

Hollur skyndibiti í fusion-stíl.

XO er hollustuskyndibitastaður sem framreiðir mat í fusion-stíl þar sem asísk og evrópsk matreiðsla renna saman. Maturinn er eldaður frá grunni og XO kappkostar að gera bragðið einstakt. XO styðst eingöngu við topphráefni og er hvorki hvítur sykur né hvítt hveiti notað við matreiðsluna.

Hugmyndin að XO var í mótun í yfir 10 ár en það var ekki fyrr en snemma á síðasta ári sem hún fór að taka á sig mynd. Eigendur XO hafa mikla ástríðu fyrir hollum mat en þeir segja það miður skemmtilega staðreynd að óhollur skyndibiti sé mjög algengur í mataræði fólks. Þeir vildu því bjóða fólki upp á hollan og góðan valkost á sanngjörnu verði.

Einkunnarorð XO eru Fun, Fast, Fusion sem lýsir staðnum og hugmyndafræðinni að baki staðnum vel. XO er í senn skyndibitastaður og veitingastaður. Fólk á jafnt að geta stokkið inn til þess að taka með sér rétti af matseðli eða sest niður í rólegheitunum og notið veitinganna í skemmtilegu og frísklegu umhverfi. „Við seljum yfir 60 prósent í „take away“ og því ljóst að tíminn er af skornum skammti á Íslandi í dag,“ segir Gunnar léttur í bragði.

XO hefur áunnið sér gott orðspor og á í dag mörg hundruð fastakúnna, jafnt einstaklinga sem fyrirtæki, en sá hópur stækkar ört. Erlendir ferðamenn hafa í síauknum mæli komið við á XO enda fær staðurinn lofsamlega dóma frá sínum viðskiptavinum, m.a. á Tripadvisor og Facebook.

"There are very unique items to order on the menu. I highly recommend the lobster pizza, it was incredible!"

„Húsnæðið er orðið of lítið fyrir okkur og við eigum í viðræðum við fasteignafélög varðandi staðsetningu fyrir annan XO veitingastað. Þar er ýmislegt að gerast,“ segir Gunnar að lokum.
XO er til húsa á Hringbraut 119, við JL húsið og Grandagarðinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
22.11.2025

Gjafahandbókin fyrir Svartan föstudag – Finndu fullkomnar gjafir á ótrúlegu verði

Gjafahandbókin fyrir Svartan föstudag – Finndu fullkomnar gjafir á ótrúlegu verði
Kynning
10.11.2025

Kjörbúðirnar lækka verð – 200 vörur á Prís verði

Kjörbúðirnar lækka verð – 200 vörur á Prís verði
Kynning
23.01.2025

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina
Kynning
09.01.2025

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla
Kynning
23.10.2024

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV