Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út að Staðarbergi í Hafnarfirði á sjötta tímanum í dag vegna elds í bíl. Sjúkrabíll var einnig kallaður út ásamt lögreglunni en mikinn reyk lagði frá bílnum. Tildrög eldsins eru að öðru leyti óljós og vildi vakthafandi varðstjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu ekki tjá sig um málið að svo stöddu.
Heimildir DV segja að bíllinn hafi verið í ljósum logum og hafi gríðarleg ólykt borist út um nágrennið.