Framkvæmdir hefjast strax sem miða að því að aðlaga húsnæðið að þörfum skrifstofa Landspítalans.

Samhliða þessu undirritaði Landspítalinn og Reitir nýjan leigusamning um leigu Landspítalans á Eiríksgötu 5, þar sem aðalskrifstofur Landspítalans eru nú. Því húsnæði verður breytt í göngudeild Landspítala.
Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins, er ekki sáttur og segir á Facebook í kvöld: „Stjórnendur flýja hávaða og ryk en sjúklingarnir liggja eftir.“ Vísar hann til framkvæmda við nýja Landspítalans, greint hefur verið frá því að sprengt verður við Barnaspítalann og hundruð þúsund tonna af jarðvegi flutt í burtu. Miðflokkurinn hefur gagnrýnt byggingaráformin við Hringbraut harðlega. Baldur Borgþórsson, varaborgarfulltrúi flokksins, tekur í sama streng og Gunnar Bragi og segir í athugasemd:„Ósvífnin á sér engin mörk. Hvað gengur þessu fólki til?“