Veðurstofa Íslands hefur gular og appelsínugular viðvaranir í öllum landshlutum vegna óveðurs sem mun ganga yfir landið í dag og fram á nótt. Spáð er suðaustan stormi síðdegis á Suður- og Vesturlandi, en í kvöld norðan- og austanlands.
Fram kemur á vef Veðurstofu að samgöngur geti raskast og hætt sé við foki á lausamunum. Þá er búist við mikilli rigningu á suðaustanverðu landinu í kvöld.
Í tilkynningu frá Veðurstofu eru foreldrar og forráðamenn hvött til að fylgja börnum úr skóla/ frístund eða á milli staða eftir þörfum meðan veðrið gengur yfir.Veður hefur versnað á höfuðborgarsvæðinu og eru foreldrar og forráðamenn beðnir að sækja börn sín í lok skóla eða frístundastarfs.Fram kemur að börn séu óhult í skóla og frístundastarfi þar til þau verða sótt. Hér er átt við börn yngri en 12 ára.
Í samtali við mbl.is segir Davíð Már Bjarnason upplýsingafulltrúi Landsbjargar að brýnt sé að fylgjast vel með veðurspá og haga ferðum sínum eftir því. Þá eru björgunarsveitir í viðbragðsstöðu vegna stormsins.
„Það er best að halda sig heima. Fólk þarf líka að huga að lausamunum en þeir eru líka stórir eins og heitir pottar sem ekki eru festir niður og trampólín sem við erum greinilega ekki enn laus við.“