fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Aldís kjörin formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrst kvenna

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 28. september 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga er Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. Sigraði Aldís með 91 atkvæði eða 62,76% atkvæða.  Er Aldís fyrsta konan sem er kjörin formaður sambandsins, samkvæmt tilkynningu.

Tveir voru í framboði til formanns og hlaut mótframbjóðandi Aldísar, Gunnar Einarssson, bæjarstjóri í Garðabæ, 49 atkvæði. Atkvæði greiddu 145. Auðir og ógildir atkvæðaseðlar voru 5.

Formannskosningu laun nú kl. 11 í Hofi, Akureyri, þar sem XXXII. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur staðið yfir frá því á miðvikudag. Halldór Halldórsson, formaður sambandsins til síðustu 12 ára, tilkynnti fyrr á þessu ári að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs og varð þá ljóst að það kæmi í hlut landsþingsins nú að kjósa nýjan formann.

Aldís varð bæjarstjóri í Hveragerði árið 2006 og var hún jafnframt fyrsta konan til að gegna því embætti. Áður hafði hún leitt lista Sjálfstæðisflokksins í tvennum sveitarstjórnarkosningum eða frá árinu 1998. Þá hefur hún gegnt fjölmörgum  trúnaðarstörfum á vegum sambandsins.

 

Þá fór einnig fram í morgun stjórnarkjör í stjórn og varastjórn sambandsins.

Eftirtalið sveitarstjórnarfólk var kosið í stjórn:

Reykjavíkurborg: Heiða Björg Hilmisdóttir (S), Þórdís Lóa Þórhallsdóttir (C), Eyþór Arnalds (D); Suðvesturkjördæmi: Gunnar Einarsson, Garðabær (D), Guðmundur Ari Sigurjónsson, Seltjarnarnesbær (S); Norðvesturkjördæmi: Rakel Óskarsdóttir, Akraneskaupstaður (D), Bjarni Jónsson, Svf. Skagafjörður (V); Norðausturkjördæmi: Kristján Þór Magnússon, Norðurþing (D), Jón Björn Hákonarson, Fjarðabyggð (B);  Suðurkjördæmi: Aldís Hafsteinsdóttir, Hveragerðisbær  (D), Ásgerður K. Gylfadóttir, svf. Hornafjörður (B).

Þá voru eftirtalin kjörin í varastjórn:
Reykjavíkurborg: Skúli Þór Helgason (S), Dóra Björt Guðjónsdóttir (P), Hildur Björnsdóttir (D), Suðvesturkjördæmi: Haraldur Sverrisson, Mosfellsbær (D), Adda María Jóhannsdóttir, Hafnarfjarðarkaupstaður (S); Norðvesturkjördæmi: Daníel Jakobsson, Ísafjarðarbær (D), Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, Borgarbyggð (V); Norðausturkjördæmi: Gauti Jóhannesson, Djúpavogshreppur (D), Guðmundur B. Guðmundsson, Akureyrarkaupstaður (D); Suðurkjördæmi: Margrét Ólöf A. Sanders, Reykjanesbær (D), Lilja Einarsdóttir, Rangárþing eystra (B).

Formanns- og stjórnarkjör er til fjögurra ára í senn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Staðfesta komu Pogba
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð