Sean Dyche, stjóri Burnley á Englandi, segir að Joe Hatt sé tilbúinn að snúa aftur í enska landsliðið.
Hart hefur ekki verið valinn undanfarna mánuði en hefur þótt standa sig mjög vel síðan hann samdi við Burnley í sumar.
,,Ég veit ekki hvort hann muni fá kallið en ég tel að hann sé tilbúinn ef það gerist,“ sagði Dyche.
,,Gareth er núna mest að horfa til framtíðarinnar og á þá leikmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref.“
,,Það er þó alltaf gott að vera með reynslu í hópnum og hann veit það.“