Átakanlegar teikningar fimm ára stúlku frá Brasilíu benda til þess að hún hafi verið kynferðislega misnotuð af kaþólskum prest í heimalandi sínu. Foreldrar stúlkunnar fundu ofangreinda mynd í kjölfar þess að stúlkan harðneitaði að fara í kennslustundir prestsins. Foreldrunum var verulega brugðið þegar þau fundu myndirnar og fóru þegar með stúlkuna til fagaðila. Mat þeirra var að hún hefði að öllum líkindum orðið fórnarlamb kynferðislegrar misnotkunar og voru foreldrarnir hvattir til þess að leita að frekari vísbendingum. Þau leituðu hátt og lágt í herbergi stúlkunnar og fundu alls sex teikningar hennar sem allar benda í sömu átt. Daily Mail greinir frá.
Þá herma heimildir blaðsins að umræddur prestur, Joao da Silva, hafi viðurkennt misnotkunina þegar faðir stúlkunnar gekk á hann. Að sögn þarlendra lögregluyfirvalda er presturinn í varðhaldi og bíður yfirheyrslu vegna hins meinta glæps.