fbpx
Mánudagur 15.september 2025
FókusKynning

Loftbóludekk frá Bridgestone frábær við íslenskar aðstæður

Kynning

Heilsársdekk frá Betra gripi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 11. október 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blizzak loftbóludekkin frá Bridgestone henta afar vel við íslenskar aðstæður. Þau eru mjög hljóðlát, míkróskorin og þægileg í öllum akstri, ásamt því að vera frábær dekk í snjó og hálku. Hér á landi eru þau notuð sem heilsársdekk þar sem lofthitinn á sumrin er lágur miðað við önnur lönd í Evrópu. Þau eru framleidd undir vörumerkjunum Blizzak DM V2 og WS80. Þessi dekk hafa skorað hátt á prófunum við norrænar aðstæður. Þá ber að hafa í huga að notkun loftbóludekkja í stað negldra dekkja dregur úr svifryksmengun. Þeir sem byrja að keyra á þessum dekkjum kaupa þau aftur og aftur bæði vegna hinna ýmsu eiginleika og kosta þeirra, sem og vegna þeirra þæginda að vera á heilsársdekkjum.

Breitt úrval hjólbarða

Betra grip er umboðsaðili fyrir Bridgestone og selur bæði í heild- og smásölu. Bridgestone framleiðir hjólbarða í öllum stærðum og gerðum, undir fjórum merkjum; Bridgestone, Firestone, Seiberling og Bandag. Úrvalið nær því allt frá vönduðum fólksbíladekkjum upp í stór og sterk vinnuvéladekk.

Mynd:

Undir vörumerkjunum Bridgestone og Firestone eru framleiddir hjólbarðar undir flestar tegundir farartækja.
Undir vörumerkinu Seiberling eru framleiddir ódýrari fólksbílahjólbarðar í háum gæðaflokki. Seiberling vetrarlínan eru míkróskorin dekk sem eru í senn mjúk og hljóðlát, henta vel sem heilsársdekk og hrinda vel frá sér vatni.
Undir vörumerkinu Bandag eru framleiddir sólaðir hjólbarðar. Bandag hefur í gegnum árin getið sér gott orð fyrir vandaða og endingargóða vöru.

Betra grip ehf. var stofnað árið 2005 sem þjónustuaðili og heildverslun með Bridgestone hjólbarða. Árið 2013 keypti Betra grip Smur,- bón- og dekkjaþjónustuna og flutti alla sína starfsemi að Guðrúnatúni 4.

Mynd: OHara

Mikil þekking innan fyrirtækisins

Fyrirtækið starfrækir hjólbarðaverkstæði í Guðrúnartúni 4. Starfsmenn fyrirtækisins eru með allt að 30 ára reynslu og þekkingu á sviði hjólbarða og ráðleggja viðskiptavinum af einlægni og kostgæfni við rétt val á hjólbörðum.
Betra grip eru með opið alla virka daga frá kl. 08.00 til 17.00. Síminn hjá Betra gripi er 533-3999, netfang betragrip@betragrip.is og vefsíða er www.betragrip.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
23.10.2024

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
Kynning
12.06.2024

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
19.02.2024

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri